Körfubolti

Meistararnir rúlluðu yfir Oklahoma City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kawhi Leonard í leiknum í nótt.
Kawhi Leonard í leiknum í nótt. Vísir/AP
Oklahoma City Thunder þarf áfram að berjast fyrir sæti sínu í úrslitakeppni NBA-deildarinnar en alls fóru þrettán leikir fram í nótt.

Meistarar San Antonio Spurs unnu mikilvægan sigur á Oklahoma City, 130-91, en liðið hefur ekki skorað fleiri stig í einum leik á tímabilinu.

Hinn magnaði Russell Westbrook fann sig engan veginn í leiknum en hann hélt af velli í þriðja leikhluta er hans menn voru 30 stigum undir. Hann skoraði sextán stig og nýtti fimm af sextán skotum sínum.

Tony Parker var stigahæstur í jöfnu liði San Antonio með 21 stig en hann gaf sex stoðsendingar þar að auki. Oklahoma City hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leikinn í nótt.

San Antonio er nú í góðri stöðu um að komast áfram í úrslitakeppnina en liðið er með 45 sigra í sjötta sæti deildarinnra. Oklahoma City er sem stendur í áttunda sætinu með 41 sigur en næsta lið á eftir, Phoenix, hefur unnið 38.

Phoenix hefði getað minnkað forystu Oklahoma City í nótt en tapaði á heimavelli fyrir Sacramento, 108-99. Sacramento á ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppninni.

Það er meiri spenna í baráttunni um síðustu sætin í úrslitakeppninni í austurdeildinni. Miami (7. sæti, 33 sigrar) vann Boston (8. sæti, 31 sigur) á útivelli í nótt en Indiana (9. sæti, 31 sigur) vann mikilvægan sigur á Washington og er nú með jafn góðan árangur og Boston. Indiana var búið að tapa sex leikjum í röð fyrir leikinn í nótt.

Brooklyn og Charlotte koma svo í næstu sætum á eftir með 30 sigra hvort en þessi lið mættust í nótt þar sem síðara liðið vann sigur í jöfnum leik, 91-88.

Meðal annnarra úrslita má nefna að Cleveland vann Memphis, 111-89, og þar með sinn fjórða sigur í röð. Kyrie Irving, Kevin Love og LeBron James voru allir með 20 stig eða meira.

Houston vann New Orleans, 95-93, þar sem Dwight Howard lék sinn fyrsta leik eftir tveggja mánaða fjarveru. Hann var með sjö fráköst í leiknum en James Harden 25 stig og tíu stoðsendingar.

Úrslit næturinnar:

Charlotte - Brooklyn 88-91

New York - LA Clippers 80-111

Orlando - Atlanta 83-95

Washington - Indiana 101-103

Toronto - Chicago 103-116

Boston - Miami 86-93

Memphis - Cleveland 89-111

Minnesota - LA Lakers 99-101

New Orleans - Houston 93-95

Denver - Philadelphia 85-99

Utah - Portland 89-92

San Antonio - Oklahoma City 130-91

Phoenix - Sacramento 99-108

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×