Sport

Meistararnir ósigraðir | Patriots skoraði ekki stig

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vörn Denver var frábær enn á ný í gær. Aqib Talib stal tveimur boltum og fagnar hér er leiknum var frestað nokkrum mínútum fyrir leikslok vegna veðurs. Hann var svo kláraður er líða tók á nóttina.
Vörn Denver var frábær enn á ný í gær. Aqib Talib stal tveimur boltum og fagnar hér er leiknum var frestað nokkrum mínútum fyrir leikslok vegna veðurs. Hann var svo kláraður er líða tók á nóttina. vísir/getty
NFL-meistarar Denver Broncos unnu enn einn sigurinn um helgina og er eina liðið í deildinni sem hefur unnið alla fjóra leiki sína í deildinni.

Philadelphia og Minnesota hafa ekki enn tapað leik en þau hafa bæði aðeins leikið þrjá leiki en Denver er búið að vinna fjóra leiki.

Denver varð fyrir áfalli í gær er leikstjórnandi liðsins, Trevor Siemian, fór meiddur af velli. Nýliðinn Paxton Lynch leysti hann af hólmi og gerði það vel.

Síðasti leikur Tom Brady, leikstjórnanda New England Patriots í leikbanni var í gær og hans var sárt saknað er liðið skoraði ekki stig á heimavelli gegn Buffalo. Patriots hafði leyst fjarveru hans frábærlega í fyrstu þrem leikjum tímabilsins og unnið þá alla. Í gær féll þeim aftur á móti allur ketill í eld.

Julio Jones hjá Atlanta varð í gær fyrsti útherjinn í þrjú ár sem grípur bolta fyrir yfir 300 jarda. Leikstjórnandi liðsins, Matt Ryan, kastaði yfir 500 jarda en þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem útherji og leikstjórnandi ná yfir 300 og 500 jarda í sama leiknum.

Cam Newton, leikstjórnandi Panthers, fékk heilahristing í leiknum og spilar væntanlega ekki um næstu helgi. Liðinu hefur gengið afleitlega í upphafi leiktíðar og hefur engan veginn staðið undir væntingum.

Úrslit:

Jacksonville-Indianapolis  30-27

Atlanta-Carolina  48-33

Baltimore-Oakland  27-28

Chicago-Detroit  17-14

Houston-Tennessee  27-20

New England-Buffalo  0-16

NY Jets-Seattle  17-27

Washington-Cleveland  31-20

Tampa Bay-Denver  7-27

Arizona-LA Rams  13-17

San Diego-New Orleans  34-35

San Francisco-Dallas  17-24

Pittsburgh-Kansas City  43-14

Í kvöld:

Minnesota - NY Giants

Staðan í deildinni.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×