Körfubolti

Meiðslamartröð 76ers heldur áfram: Simmons á leið í aðgerð

Stuðningsmenn 76ers þurfa að bíða eftir því að sjá þennan kappa inn á vellinum.
Stuðningsmenn 76ers þurfa að bíða eftir því að sjá þennan kappa inn á vellinum. Vísir/getty
Ben Simmons sem Philadelphia 76ers valdi með fyrsta valrétt í nýliðavalinu í NBA-deildinni er á leiðinni undir hnífinn en þetta kemur fram á ESPN.

Miklar væntingar eru gerðar til hins ástralska Simmons en samkvæmt bandaríska fréttamiðlinum verður Simmons frá næstu þrjá mánuðina.

Forráðamenn 76ers hafa verið gagnrýndir fyrir hugmynd sína um að tefla fram slöku liði í von um að fá stórstjörnu úr háskólaboltanum í nýliðavalinu en Simmons var slíkur leikmaður.

Er þetta ekki í fyrsta skiptið sem stuðningsmenn 76ers þurfa að bíða eftir að sjá valrétt liðsins spila í NBA-deildinni en í fyrra missti Jahlil Okafor af 29 leikjum.

Þá hefur Joel Embiid, miðherjinn sem liðið valdi fyrir tveimur árum, ekki enn leikið leik fyrir Philadelphia 76ers í NBA-deildinni.

Nerlens Noel, sem valinn var ári á undan missti af öllu fyrsta tímabili sínu vegna meiðsla.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×