Handbolti

Með nöfn barnanna á skónum: „Þetta er uppáhaldsparið mitt“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Kárason og skóparið fræga.
Rúnar Kárason og skóparið fræga. vísir/getty/instagram
Foreldrar Rúnars Kárasonar, landsliðsmanns í handbolta, hafa verið á síðustu þremur leikjum íslenska liðsins að styðja sinn manna og strákana í íslenska landsliðinu.

„Þau eru farin núna en það var gaman að sjá þau. Nú eru konur Óla Guðmunds, Arnars Freys og mín að ferðast saman og á leið til okkar. Það verður líka gaman að sjá þær. Þær segjast vera að koma á leikinn gegn Makedóníu og leikinn í sextán liða úrslitunum. Við verðum því að standa okkur,“ segir Rúnar léttur.

Rúnar er tveggja barna faðir og setti mynd á Instagram af skópari sem hann var búinn að tússa á nöfn barnanna sinna.

„Ég er með tvö pör af skóm og var alltaf að ruglast á því hvor vinstri passaði með hvorum hægri. Kíkja undir sólana og athuga hvaða táfýla passaði með hvaða skó. Það var því best að merkja skóna börnunum. Það er gott að hafa krakkana með sér inni á vellinum og ég verð í þeim skóm í þessum leik. Þetta er uppáhaldsparið mitt núna,“ segir Rúnar Kárason.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).

Salvar og Soffía voru með mér í fyrsta sigurleiknum! #börninmín #ísland #phenomenalhandball #mizuno

A photo posted by Rúnar Kárason (@runarkarason) on


Tengdar fréttir

Frábært að þetta er í okkar höndum

Það er allt undir hjá strákunum okkar í dag þegar þeir spila lokaleik sinn í riðlakeppni heimsmeistaramótsins gegn Make­dóníu­mönnum.

Hlutkesti gæti ráðið örlögum strákanna okkar í dag

Ísland leikur í kvöld lokaleik sinn í riðlakeppni HM. Fjögur efstu lið hvers riðils fara áfram í 16-liða úrslitin en hin tvö í Forsetabikarinn. Þetta eru möguleikar Íslands í kvöld miðað við að Túnis vinni Angóla í dag:

Verðum fljótt komnir með hörkulandslið aftur

Rúnar Kárason er í stóru ábyrgðarhlutverki hjá íslenska landsliðinu á HM. Þetta er hans fyrsta stóra tækifæri með landsliðinu og hann hefur nýtt það vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×