Með matreiðsluþátt á BBC Álfrún Pálsdóttir skrifar 17. apríl 2012 09:32 Völundur Snær völundarson. „
Það er frábært að BBC sé að sýna þættina og þátturinn hefur fengið mikla dreifingu fyrir vikið," segir sjónvarpskokkurinn Völundur Snær Völundarson en sjónvarpsstöðin BBC Lifestyle hóf nýlega að sýna matreiðsluþætti hans, Delicious Iceland. Völundur, eða Völli eins og hann er kallaður, tók upp þáttaröðina árið 2010, en þar ferðast hann um Ísland, eldar og kynnir um leið íslenska menningu og uppruna hráefnisins sem notað er í matreiðsluna. Völli hefur orðið var við mikil og góð viðbrögð að utan við þáttunum. "Ég hef fengið mjög góð viðbrögð frá útlendingum og er á því að þetta sé hin besta landkynning. Ég hef ófáum sinnum verið stöðvaður af útlendingum niðri í bæ sem þekkja mig úr sjónvarpinu," segir sjónvarpskokkurinn, en þáttaröðin, sem inniheldur sex þætti, hefur þegar verið sýnd í um 30 löndum úti um allan heim. Hjá BBC Lifestyle er Völli kominn í hóp með frægustu sjónvarpskokkum heims á borð við Jamie Oliver, Gordon Ramsay og Nigellu sem einnig deila matarþekkingu sinni með áhorfendum stöðvarinnar. Völli einbeitir sér að framleiðslu matreiðsluþátta þessa stundina og næsta skref hjá honum er að fara með stiklur að nokkrum þáttum á matarráðstefnu í Kína í sumar. "Það eru allir að reyna að komast inn á Asíumarkað enda mjög stór markaður. Takmarkið er að fá þá til að borga framleiðslukostnað af þáttunum. Þess vegna er ég tilbúinn með fjölbreytta flóru af stiklum og ætla að kanna hvernig markaðurinn þarna virkar," segir Völli sem ætlar að sjá hvort Asíumarkaðurinn sé ennþá hrifinn af ferða- og matreiðsluþáttum, þáttum sem eru teknir upp í stúdíói eða sérstökum grillþáttum. "Ég er einnig með seríu með íslenskt sjávarfang í forgrunni á teikniborðinu sem gaman væri að gera á næstunni." Völli hefur verið búsettur á Bahama undanfarin ár ásamt konu sinni, fjölmiðlakonunni og rithöfundinum Þóru Sigurðardóttur, og börnum en segist nú vera kominn með annan fótinn heim. "Fjölskyldan, vinirnir og íslenska skólakerfið heillaði og þess vegna eru börnin og konan komin heim. Ég vil ekki segja að ég sé fluttur heim því ég fer reglulega út til Bahama en annar fóturinn er kominn." Fyrir áhugasama þá er Delicious Iceland á dagskrá BBC Lifestyle í kvöld.
Matur Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf David Hockney er látinn Menning Fleiri fréttir Brennivín hlaut gullverðlaun Sjá meira