Innlent

Með kramið hjarta á Alþingi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Óttar Proppé vill að þingmenn finni gleðina í hjarta sínu á ný eftir hörð átök síðustu daga.
Óttar Proppé vill að þingmenn finni gleðina í hjarta sínu á ný eftir hörð átök síðustu daga. vísir/pjetur
Óttar Proppé, þingmaður Bjartrar Framtíðar, gerði eftirfarandi ljóðlínur Valgeirs Guðjónssonar að sínum á Alþingi í dag.

„Hver getur læknað kramið hjarta, hver getur límt saman brotna sál, hver getur stutt stoltið særða, hver getur læknað kramið hjarta.“

Sagði Óttar að hjartað í honum væri að kremjast en hart hefur verið deilt á Alþingi seinustu daga vegna rammaáætlunar. Hefur stjórnarandstaðan ítrekað lagt fram breytingatillögur á dagskrá þingsins og hafa viljað færa aðra dagskrárliði fram yfir umræðu um rammaáætlun en stjórnarmeirihlutinn hefur alltaf fellt þær tillögur.

Þingmenn hafa því rætt fundarstjórn forseta nær sleitulaust en Óttar sagði verk og ábyrgð Alþingis vera slík að þingmenn gætu ekki setið þar með kramið hjarta. Hann sagði enga mömmu vera á leiðinni og hvatti þingmenn til að finna gleðina í hjarta sér á ný.

Einar K. Guðfinnsson, forseti þingsins, kvaddi sér þá hljóðs:

„Forseti gerir nú undantekningu og leyfir sér að segja heyr, heyr.“

Svo virðist sem að forseti hafi svo breytt dagskrá þingsins því þegar umræðunni um fundarstjórn forseta lauk um hálffjögur í dag var farið í dagskrárlið þrjú, sérstaka umræðu um fyrirkomulag náms til stúdentsprófs, og þar með hlaupið yfir áætlaða umræðu um rammaáætlun.

Uppfært klukkan 16:20: Umræða um rammaáætlun er nú hafin og eru hátt í 20 þingmenn á mælendaskrá.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×