Með A4 innanklæða

Fréttablaðið Aðsendar greinar 25. júní 2010 06:00
Bryndís Björgvinsdóttir, þjóðfræðingur
Bryndís Björgvinsdóttir, þjóðfræðingur
Bryndís Björgvinsdóttir skrifar:
Hver sá sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru miklar.
- 100. gr. almennra hegningarlaga.


Gestagangur
Að morgni dags þann 8. desember 2008 bar ókunnugan gest að garði Alþingis. Hann bankar á dyrnar sem leiða upp á áhorfendapalla almennings. Þingvörður opnar fyrir gestinum og hleypir honum inn. Á meðan gesturinn tekur af sér lætur annar gestur vita af sér við dyrnar. Þingvörðurinn opnar fyrir honum, sem og tveimur öðrum gestum sem koma aðvífandi. Einn þessara gesta staðnæmist í dyragættinni á meðan enn fleiri gestir birtast að baki honum - og skyndilega eru rúmlega tuttugu manns í anddyrinu og á leið upp á palla. Fleiri þingverðir koma að. Þeir ákveða að meina gestunum leið á pallana, og ýta eða toga þá niður stigana. Gestirnir ýta á móti og segjast hafa rétt á að fara upp á pallana - þar sem einn þeirra hyggst lesa upp tilkynningu fyrir þingheim. Samkvæmt frásögn eins þingvarðar hreyta sumir gestanna „svívirðingum", en „beita engu valdi eða ofbeldi".


Með A4 innanklæða

Stuttu eftir að þingverðir og gestir taka að moðast um anddyri og stigaganga kemur lögreglan að og lokar gestina af inni í húsinu. Tveir þeirra komast þó upp á áhorfendapallana þar sem annar þeirra dregur upp eina árásarvopn heimsóknarinnar: A4-blað - með stöfum á. Hann nær að lesa niðurlag tilkynningarinnar áður en hann er dreginn í burtu af vöskum lögreglumanni. „Út," kallar gesturinn yfir þingheim, „drullið ykkur út. Þetta hús þjónar ekki tilgangi sínum lengur."

Lögreglan heldur gestunum í stiganum nokkra hríð, gerir síðan sumum frjálst að fara en ber aðra út í járnum og undarlegum stellingum. Í kjölfarið gerist tvennt: Þingmenn fresta fundi um sem nemur tvöföldum ljósabekkjatíma. Og níu manna slembiúrtak úr gestahópnum er ákært fyrir brot á 100. grein hegningarlaga, að hafa gert árás á Alþingi.




Óraplága

„Ekki var hægt að útiloka að einhverjir í hópnum væru með eitthvað innanklæða sem gæti skaðað alþingismenn og starfsmenn," skrifar Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, til lögreglustjóra í kjölfar uppákomunnar. Þar með er mál nímenninganna hjúpað efasemdum: Ljóst er að nímenningarnir voru ekki einir um að trufla þingstörf veturinn 2008-2009, en stefnan er sett á að refsa þeim fyrir eitthvað sem þeir hefðu getað gert - eitthvað sem þeir hefðu getað verið með innanklæða.

Engar eignir voru skemmdar. Engar gangstéttarhellur flugu um anddyrið. Engan ásetning um ofbeldi eða hótanir má finna í sönnunargögnum. Einn gestanna er sagður hafa bitið í leðurhanska lögregluþjóns sem hafði gripið um andlit hans. Þingvörður meiddist á þumli. Loks sætir einn útbornu gestanna ákæru fyrir að hafa hrint þingverði á ofn. Í vor sýndi Kastljós Sjónvarpsins hins vegar upptöku úr öryggismyndavél, þar sem þingvörður sést draga gestinn aftur á bak svo hann fellur eins og dómínókubbur á annan þingvörð sem þá fer utan í ofninn. Þrátt fyrir myndbandið hafa ákærurnar á hendur nímenningunum ekkert breyst.

Segjum að í ljós kæmi myndband sem sýndi að þeir ellefu meintu vændiskaupendur, sem bráðum verður einnig réttað yfir, hefðu alls ekki snert konurnar á þann hátt sem þeir eru sakaðir um. Yrði samt krafist ákæru fyrir að „ekki hafi verið hægt að útiloka" að þeir hefðu getað keypt konurnar? Að karlmennirnir hefðu getað verið með pening innanklæða sem þeir hefðu getað notað ólöglega?

Eins og í Lúkasarmálinu svokallaða lykta ákærurnar á hendur nímenningunum af ofsóknum og órum um hvað þeir hefðu getað gert. Órarnir afhjúpa þá staðreynd að nímenningana á að gera að blórabögglum: Það eru ekki beinlínis þeir sem verið er að sækja til saka, heldur allir þeir sem trufluðu þinghald veturinn 2008-2009 með ítrekuðum mótmælafundum og búsáhaldabyltingu.




Bunki af A4

40 dögum eftir heimsóknina á áhorfendapallana loguðu eldar við Alþingishúsið. Þá sindraði á piparúða og skuggar féllu á húsið af skiltum, pönnum og lögreglukylfum. Þá daga hrópuðu gestirnir að Alþingi tímunum saman - þar til þingmenn loks raunverulega „drulluðu sér út" í gegnum leynigöng og undir lögregluvernd. 700 þátttakendur í mótmælunum hafa skrifað undir kröfu um að ákærurnar á hendur nímenningunum verði látnar niður falla. Að öðrum kosti verði þeir allir einnig sóttir til saka fyrir árás á Alþingi - í sama skilningi og nímenningarnir: Þeir sóttu Alþingi heim, án vopna og án ofbeldis, en með mun háværari tilkynningum en gestirnir sem fóru á undan. Þann 24. júní voru þinginu afhentar þessar undirskriftir, meitlaðar í það eina sem nímenningarnir reyndust vega að Alþingi með eftir allt saman - bunka af A4.

Þann 29. júní nk. verður réttað yfir nímenningunum fyrir héraðsdómi. Rétt eins og í máli vændiskaupendanna verður aðgangur almennings að þinghaldinu takmarkaður og þinghaldið sjálft varið af lögreglu, en ekki að ósk hinna ákærðu - eins og í tilviki vændiskaupendanna - heldur til að halda fólki af sama sauðahúsi og nímenningarnir frá dómsalnum. Svona fólki sem gæti verið með eitthvað í vösunum.



Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Með A4 innanklæða