Sport

Mayweather er ekki eins fordómafullur og Manny

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hér má sjá Mayweather og Manny.
Hér má sjá Mayweather og Manny. vísir/getty
Hnefaleikakappinn fyrrverandi Floyd Mayweather segir sína skoðun á flestum hlutum og líka umdeildum ummælum Manny Pacquiao

Það vakti heimsathygli er Pacquaio sagði að samkynhneigðir væru verri en dýr. Hann hefur beðist afsökunar á þeim ummælum að einhverju leyti.

Sjá einnig: Samkynhneigðir verri en dýr

Síðasti bardagi Mayweather á ferlinum var gegn Manny og Mayweather hefur sagt sína skoðun á þessum umdeildu ummælum.

„Við verðum að vera jákvæð. Við eigum að leyfa fólki að vera eins og það vill vera. Ég hef ekkert á móti neinum,“ sagði Mayweather sem er umburðarlyndari en Manny.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×