Erlent

May verður forsætisráðherra á miðvikudag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Theresa May verðandi forsætisráðherra Bretands og David Cameron fráfarandi forætisráðherra.
Theresa May verðandi forsætisráðherra Bretands og David Cameron fráfarandi forætisráðherra. vísir/epa
Theresa May mun taka við sem forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á miðvikudagskvöld. Þetta tilkynnti David Cameron fráfarandi forsætisráðherra í dag.

Hann mun á morgun stjórna sínum síðasta ríkisstjórnarfundi og á miðvikudag mun hann í seinasta skipti svara spurningum á breska þinginu sem forsætisráðherra. Því næst mun hann fara á fund Elísabetar Bretadrottningar og segja af sér og mun May taka við embættinu í kjölfarið.

Það varð ljóst fyrr í dag að allar líkur væru á því að May yrði önnur konan í sögu Bretlands til að gegna embætti forsætisráðherra þegar Andrea Leadsom tilkynnti að hún ætlaði ekki að sækjast eftir því að leiða flokkinn í ríkisstjórn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×