Máttlitlir siðferðisvitar

Fréttablaðið Fastir pennar 14. október 2011 06:00
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek skrifar:
Það hver verði biskup eftir ár er ekki mjög áhugaverð spurning. Það er heldur ekki það sem kirkjan ætti að hafa áhyggjur af eða við ættum að vera að spyrja okkur. Þess í stað ættum við að velta því fyrir okkur hvort þjóðkirkjan, eða önnur trúfélög, séu öfl sem mark er á takandi þegar kemur að því að vísa veginn í siðferðismálum. Trúleysingjanum finnst það ekki, en hver verður að fá að svara þessu fyrir sig.

Trúarbrögð heimsins deila flest nokkrum sameiginlegum einkennum. Flest þeirra gefa til dæmis rangar skýringar á upphafi heimsins og tilurð mannsins. Vísindunum hefur tekist að gefa mun líklegri skýringar á hvoru tveggja þótt öfgamenn í mörgum löndum reyni gjarnan að halda hinum röngu skýringum til streitu og fá þær jafnvel kenndar í skólum. Sem betur fer eru slík afskipti trúarleiðtoga þó fremur fátíð hérlendis.

En þegar kemur að siðferðismálum hafa kristnar kirkjur þó að einhverju leyti haldið velli sem afl sem hlustað er á. Ekki er víst að sú staða sé verðskulduð. Framfarir í siðferðismálum verða sjaldan fyrir tilstuðlan trúfélaga. Þvert á móti virðist að ekki sé hægt að finna þá bábilju sem eitthvert afturhald með söfnuð sér að baki geti ekki léð máls á. Hatursburður forstöðumanna sumra trúarsöfnuða í garð samkynhneigðra er bara eitt dæmi.

Jafnvel þjóðkirkjan íslenska, sem samanborið við marga aðra söfnuði er vissulega fremur frjálslynd, eltir miklu fremur samfélagslegar breytingar en að leiða þær. Ekki er lengra en fjögur ár frá því að Kirkjuþing lagði áherslu á að „frelsi presta væri virt“ þegar kæmi að hjónavígslum fólks af sama kyni. Fallist var á þetta í nýjum hjúskaparlögum.

Nokkrar spurningar vakna: Er það eðlilegt að þeir sem framkvæma opinberar athafnir hafi slíkt sjálfsvald? Lýsa óskir um slíkt nútímalegri siðferðiskennd? Hvað þætti okkur um að íþróttafélag sem fengi opinbera styrki færi sérstaklega fram á að geta valið í liðið á forsendum kynþáttar eða ætternis? Hugsum okkur svo einkarekinn grunnskóla þar sem skólastjórinn reynist vera kynferðisafbrotamaður.

Jafnvel ef stjórn skólans gerði allt rétt ætti hún að hafa miklar áhyggjur af framtíð skólans. En hvað ef stjórnin hefði hunsað ábendingar um kynferðisbrotin? Hvaða framtíð ætti slíkur skóli fyrir sér?

Trúarsöfnuðir virðast auðvitað fylgja einhverjum öðrum lögmálum en önnur félög. Er það til dæmis ekki magnað að fórnarlömb ofbeldis starfsmanna trúfélaga leiti hvað eftir annað til trúfélaganna sjálfra til að fá úrlausn mála sinna? Það hafa þau gert hérlendis, sömu sögu er að segja frá öðrum löndum. Reynslan ætti að kenna fólki að leita annað. Það hafa verið blaðamenn, sálfræðingar, lögfræðingar og læknar, sem sagt „veraldlegir menn“, sem gjarnan hafa ýtt málum fórnarlambanna áfram.

Ekki prestar eða biskupar. Enda ætti ekki að koma fram við trúfélög sem sérstök ríki í ríkinu. Ef ráðist er á konu á skemmtistað, þá er eðlilegast að leita til lögreglu, en ekki leita til skemmtistaðarins og bíða eftir að nefnd á hans vegum skili af sér skýrslu.

Nú er ekki þar með sagt að í kirkjum landsins starfi eintómir siðleysingjar. En það má spyrja sig hvort siðferðislegur árangur kirkjunnar seinustu áratugi gefi mikla ástæðu til að til hennar sé litið sem góðrar fyrirmyndar á því sviði. Um það má efast.

Trúfélög stæra sig gjarnan af því að þau fylli ákveðið skarð í lífi fólks. Þau gefi svör um tilgang lífsins, varði áfanga á lífsleið þess og leitist við að svara spurningum um rétt og rangt. Önnur hugmyndakerfi geta auðvitað hæglega fyllt þau meintu skörð sem hér eru nefnd. Tilgang lífsins má finna án loforðs um himnaríki. Fagna má nýfæddu án vísunar í yfirnáttúrleg öfl. Loks má svara siðferðislegum spurningum ansi vel án þess að þurfa að grípa til hugtaka á borð við „Guð“, „synd“ og „helvíti“. Og þau svör verða sjaldnast síðri.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Máttlitlir siðferðisvitar