Fótbolti

Matthías heldur áfram að safna titlum með Rosenborg

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson. Vísir/Getty
Matthías Vilhjálmsson og félagar í Rosenborg urðu í kvöld meistarar meistaranna í Noregi þegar þeir unnu 2-0 sigur á Brann.

Rosenborg vann tvöfalt á síðasta tímabili og því var þetta leikur á milli Noregsmeistaranna og liðsins sem endaði í öðru sæti í deildinni sem var lið Brann. Leikurinn fór fram á heimavelli Brann, Brann Stadion í Bergen.

Serbinn Milan Jevtovic, sem er í láni frá tyrkneska félaginu Antalyaspor, skoraði fyrra markið strax á 32. mínútu leiksins eftir að hafa fengið stoðsendingu frá  Fredrik Midtsjö. Seinna markið skoraði varamaðurinn Tore Reginiussen í uppbótartíma með nánast síðustu spyrnu leiksins.

Matthías Vilhjálmsson var í byrjunarliði Rosenborg, hluti af þriggja manna framlínu með þeim Milan Jevtovic og Kósóvómanninum Elba Rashani. Matthías lék allar 90 mínúturnar.

Norðmönnum hefur gengið illa að halda meistarakeppninni sinni gangandi en þetta var sú fyrsta síðan 2010. Þá vann Rosenborg líka. Leikurinn er góðgerðaleikur í samvinnu við Unicef og heitir „Unicef Meistaraleikurinn“ en þetta er sett svipað upp og leikurinn um Samfélagsskjöldinn í Englandi.

Matthías Vilhjálmsson kom til Rosenborg 2015 og hefur unnið tvöfalt, það er deild og bikar, bæði árin. Nú byrjar hann þriðja tímabil sitt á því að bæta einum titli til viðbótar í safnið.

Viðar Ari Jónsson, fyrrum Fjölnismaður, var ekki í leikmannahópi Brann í leiknum en hann hefur verið upptekinn með íslenska A-landsliðinu síðustu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×