Fótbolti

Matthías bjargaði stigi fyrir Start

Anton Ingi Leifsson skrifar
Matthías í leik með Start.
Matthías í leik með Start. vísir/getty
Matthías Vilhjálmsson skoraði mark Start í 1-1 jafntefli Start gegn Mjøndalen í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Erik Midtgarden klikkaði vítaspyrnu fyrir Mjøndalen í upphafi síðari hálfleiks, en Mads Gundersen tók frákastið og skoraði.

Það virtist stefna í sigur Mjøndalen, en Matthías Vilhjálmsson jafnaði metin tveimur mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 1-1.

Start er í fjórða sætinu eftir þrjá leiki, með fimm stig, eins og Mjøndalen.

Matthías spilaði allan leikinn eins og liðsfélagi sinn Guðmundur Kristjánsson. Ingvar Jónsson sat allan tímann á bekknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×