Lífið

Matthew McConaughey og Ísland í brennidepli í nýrri auglýsingu Lincoln

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Matthew McConaughey var staddur hér á landi í desember við tökur á auglýsingunni.
Matthew McConaughey var staddur hér á landi í desember við tökur á auglýsingunni.
Ný auglýsing með Matthew McConaughey, sem tekin var upp hér á landi, var frumsýnd á gamlárskvöld. Auglýsingin er gerð af auglýsingastofunni Hudson Rouge fyrir bílaframleiðandann Lincoln.  

Á vef Adweek segir að auglýsingin, sem er mínúta að lengd, sé tekin upp á „afskekktum stað á Íslandi.“ Var hún tekin upp skömmu fyrir jól. 

Í auglýsingunni sést McConaughey standa við hlið Lincoln-glæsibifreiðar á víðáttumikilli sandsléttu þakinni grunnu vatni.

Í lok auglýsingarinnar þeysir leikarinn af stað á bílnum með tilheyrandi gusugangi.

„Hún er fersk, nútímaleg og mjög sjónræn,“ sagði John Emmert, markaðsstjóri bílaframleiðandands um auglýsinguna.

Auglýsingin er framhald af herferð Lincoln frá því í haust sem birtist á prenti. Ljósmyndari þeirrar auglýsingaherferðar var hin heimsþekkta Annie Leibovitz.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×