Masters 2012: Kveikir umdeild bók neistann hjá Tiger Woods?

Vísir Golf 04. apríl 2012 14:45
Hank Haney og Tiger Woods náđu góđum árangri á međan ţeir unnu saman. Woods sigrađi á sex risamótum og yfir 30 PGA-mótum á árunum 2004-2010.
Hank Haney og Tiger Woods náđu góđum árangri á međan ţeir unnu saman. Woods sigrađi á sex risamótum og yfir 30 PGA-mótum á árunum 2004-2010.
Hank Haney, fyrrum þjálfari Tigers Woods, gaf út bók á dögunum þar sem hann fjallar um þann tíma sem hann var aðalþjálfari besta kylfings heims. Haney og Tiger Woods voru nánir samstarfsfélagar á árunum 2004-2010 en Haney sagði upp störfum skömmu eftir að upp komst um framhjáhald Tigers Woods í lok ársins 2009.

Árangur þeirra var góður því Tiger Woods sigraði á alls sex stórmótum og 30 PGA-mótum á meðan hinn 57 ára gamli Haney var aðalþjálfari hans.

Golfkennarar og þjálfarar sem starfa með atvinnukylfingum í PGA-mótaröðinni eru margir hverjir afar óánægðir með bókina hjá Haney. Þeir telja að hann hafi rofið trúnað við „skjólstæðing" sinn og það sé ekki í verkahring golfkennara að tjá sig eða skrifa um það sem gerist í einkalífi kylfinga.

Haney er á öðru máli og telur sig hafa rétt á því að greina frá minningum sem hann deilir með Tiger Woods. Og það þarf ekki að segja frá því að Tiger Woods er ekkert sérstaklega ánægður með útgáfu bókarinnar. Bókin kom út föstudaginn 23. mars, þegar Woods var að keppa á öðrum keppnisdegi Arnold Palmer-meistaramótsins á Bay Hill. Það er ekki loku fyrir það skotið að Woods hafi notað útgáfu bókarinnar til þess að efla sig enn frekar fyrir mótið – því hann stóð uppi sem sigurvegari og landaði sínum fyrsta alvörutitli eftir 30 mánaða bið.

Í bókinni lýsir Haney m.a. því sem gerðist hjá þeim sem voru í innsta kjarna hjá Tiger Woods. Haney segir að það hafi oft verið erfitt að fara út að borða með Tiger. „Þegar hann var búinn að borða þá var máltíðinni lokið að hans mati. Tiger var fljótur að borða, það skipti engu þótt aðrir við borðið ættu eftir að klára sitt. Í hvert sinn sem við náðum í skyndibita fyrir utan golfvöllinn þá fór ég að ná í matinn og borgaði hann líka. Tiger tók aldrei þátt í því að borga," skrifar Haney m.a. í bókinni.

Englendingurinn Ian Poulter er ekki á vinalista Tigers Woods ef marka má sögu sem Haney segir frá í bókinni. Woods og Poulter voru staddir á Oakmont-vellinum á æfingahring fyrir opna bandaríska meistaramótið 2007. Woods var með einkaflugvélina til reiðu sem beið eftir honum á meðan hann kláraði æfingahringinn. Poulter vissi af þessu og gekk hann til Tigers og spurði. „Hvernig komumst við heim?" og var að óska eftir því að Tiger myndi bjóða honum far en þeir voru nágrannar í Orlando á þessum tíma. Tiger tók fálega í ósk Poulters sem gafst ekki upp og birtist á flugvellinum og beið eftir því að fá far með vélinni. Ætlunarverkið tókst og á meðan þeir voru í fluginu sendi Tiger Woods sms-skilaboð á Haney. Þar stóð: „Ég trúi því varla að þessi h...viti hafi grenjað út far."

Spilar upp á armbeygjur í stað peninga

Árstekjur Tigers Woods undanfarinn áratug eða svo hafa verið um 100 milljónir dollara eða sem nemur 12-13 milljörðum kr. Það er því ekki mikil hvatning fyrir Tiger Woods að spila upp á peninga á golfvellinum og samkvæmt bók Haney þá veðjaði hann um armbeygjur í stað peninga. Það var mjög algengt að Woods veðjaði um 150 armbeygjur fyrir hvert högg sem munaði í keppninni. „Eitt sinn þurfti Woods að taka 600 armbeygjur til þess að gera upp veðmál á Isleworth-vellinum," segir í bók Haney.

Engin fagnaðarlæti eða veislur

Elin Nordgren, fyrrverandi eiginkona Tigers Woods, var „au pair" hjá sænska kylfingnum Jesper Parnevik þegar þau kynntust. Elin var vön því að upplifa mikil veisluhöld á heimili Parneviks í þau skipti sem hann sigraði á PGA-golfmóti. Parnevik hefur fram til þessa sigrað á 5 PGA-mótum og er ekki líklegur til þess að bæta við fleiri slíkum titlum í safnið. Samkvæmt bók Haney vildi Elin halda upp á sigra Tigers Woods með svipuðum hætti en það kom ekki til greina. Elin mátti ekki sýna nein viðbrögð úti á golfvellinum í þau skipti sem hún var viðstödd þegar Tiger Woods fagnaði sigri. Að hans mati átti það ekki að koma henni á óvart að hann myndi sigra – slíkt væri venja frekar en undantekning.

Deila
Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.
Golf 16. maí 2013 06:30

Golfvertíđin hefst um helgina

Í vikunni var undirritađ samkomulag á milli Golfsambands Íslands og Íslandsbanka um barna- og unglingastarf sambandsins í sumar. Meira
Golf 12. maí 2013 23:32

Tiger Woods vann Players-golfmótiđ í kvöld

Tiger Woods tryggđi sér í kvöld sigur á Players-golfmótinu međ ţví ađ spila lokadaginn á 70 höggum eđa tveimur höggum undir pari. Woods lék tveimur höggum betur en nćstu menn sem voru Svíinn David Lin... Meira
Golf 12. maí 2013 11:57

Garcia ósáttur viđ Tiger Woods

Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnađ högg sem varđ til ţess ađ forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluđu saman ţriđja hringinn á mótinu í gćr. Meira
Golf 11. maí 2013 12:00

Tiger andar ofan í hálsmáliđ á Garcia

Spánverjinn Sergio Garcia er kominn međ forystu á Players-meistaramótinu eftir annan hring. Tiger Woods er höggi á eftir Garcia. Meira
Golf 10. maí 2013 12:00

Tiger og Rory heitir á Sawgrass

Tiger Woods og Rory McIlroy byrjuđu báđir vel á Players-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Sawgrass-vellinum ţekkta. Meira
Golf 09. maí 2013 13:00

Golfsumarsins beđiđ

Kylfingar á höfuđborgarsvćđinu eru farnir ađ munda kylfurnar og vel ţađ ţví margir af stćrstu golfvöllum svćđisins verđa opnađir í dag eđa um helgina. Meira
Golf 02. maí 2013 20:30

Tólf ára á Evrópumótaröđinni

Ye Wocheng, tólf ára kínverskur áhugakylfingur, varđ í dag sá yngsti í sögunni til ţess ađ keppa á Evrópumótaröđinni. Wocheng vill ţó líklega gleyma frumrauninni sem allra fyrst. Meira
Golf 02. maí 2013 19:30

Óvíst hvenćr hefja má leik á Leirdalsvelli

Guđmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir ađ veđur ţurfi ađ batna til muna eigi kylfingar ađ geta hafiđ leik á vellinum ţann 9. maí eins og vonir standa til. Meira
Golf 30. apríl 2013 12:15

Fékk bónorđ á golfvellinum | Myndband

Kvenkylfingurinn Brittany Lang var ekki alveg í sínu besta formi á LPGA-móti í Texas en dagurinn hjá henni á golfvellinum endađi aftur á móti mjög vel. Meira
Golf 17. apríl 2013 16:00

Tólf ára kínverskur strákur keppir á Evrópumótaröđinni

Kínverskir kylfingar halda áfram ađ setja aldursmet í golfinu en nú er ljóst ađ hinn tólf ára gamli Ye Wocheng verđur yngsti kylfingurinn til ađ keppa á Evrópumótaröđinni í golfi ţegar hann keppir á V... Meira
Golf 15. apríl 2013 09:10

Átta Ástralir höfđu endađ í öđru sćti á Mastersmótinu

Adam Scott endurskrifađi sögu ástralska kylfinga í gćr međ ţví ađ verđa fyrsti Ástralinn til ađ vinna Mastersmótiđ í golfi. Fram ađ ţessu leit hreinlega út fyrir ađ ţađ lćgju álög á áströlskum kylfing... Meira
Golf 15. apríl 2013 08:36

Svona fór Adam Scott ađ ţví ađ vinna Mastersmótiđ

Ástralinn Adam Scott tryggđi sér sigur á Mastersmótinu í gćr eftir bráđabana á móti Argentínumanninum Angel Cabrera. Nú er hćgt ađ sjá svipmyndir frá lokadeginum inn á Sjónvarpsvef Vísis eđa međ ţví a... Meira
Golf 15. apríl 2013 07:37

Greg Norman hefur mikla trú á Adam Scott

Adam Scott vann í gćr Mastersmótiđ í golf og fékk ađ klćđast grćna jakkanum fyrstur Ástrala. Hann sagđi eftir sigurinn ađ Greg Norman ćtti ţátt í ţessum titli ţví hann vćri sá sem ástralskir kylfingar... Meira
Golf 14. apríl 2013 23:59

Greg Norman á stóran ţátt í titlinum

"Ég veit ekki hvernig ţetta gerđist. Margt hefur breyst á tveimur árum,“ sagđi Adam Scott. Nýbakađur sigurvegari á Masters átti erfitt međ ađ koma tilfinningum í orđ ţegar grćni jakkinn var í sj... Meira
Golf 14. apríl 2013 23:04

Adam Scott vann Masters eftir umspil

Ástralinn Adam Scott varđ í kvöld fyrsti Ástralinn sem vinnur Masters-mótiđ í golfi. Hann tryggđi sér sigur á annarri umspilsholu gegn Argentínumanninum Angel Cabrera. Hann setti niđur um fjögurra met... Meira
Golf 13. apríl 2013 23:16

Cabrera og Snedeker leiđa Masters | Tiger á smá von

Argentínumađurinn Angel Cabrera og Bandaríkjamađurinn Brandt Snedeker eru efstir og jafnir á Masters-mótinu í golfi fyrir lokahringinn. Ţeir eru báđir á samtals sjö höggum undir pari. Báđir kylfingar ... Meira
Golf 13. apríl 2013 19:24

Tiger sćttir sig viđ refsinguna

Tiger Woods slapp viđ frávísun af Masters-mótinu fyrr í dag. Honum var ţó refsađ en hann fékk tveggja högga refsingu fyrir ólöglegt dropp sem ţó var ekki viljandi. Meira
Golf 13. apríl 2013 13:45

Tiger slapp međ skrekkinn

Tiger Woods var ekki vísađ úr Masters-mótinu fyrir ólöglegt dropp á hringnum í gćr. Hann fćr aftur á móti tveggja högga víti frá dómaranefnd mótsins. Meira
Golf 13. apríl 2013 11:52

Örlög Tigers ráđast síđar í dag

Svo gćti fariđ ađ Tiger Woods verđi rekinn úr Masters-mótinu. Ţví er haldiđ fram ađ hann hafi tekiđ ólöglegt högg á 15. brautinni í gćr. Meira
Golf 12. apríl 2013 23:59

Heppnin ekki međ Tiger á fimmtándu

Tiger Woods er í 7. sćti og ţremur höggum á eftir efsta manni ţegar Mastersmótiđ í golfi er hálfnađ. Tiger byrjađi vel á öđrum hring en hafđi ekki heppnina međ sér á fimmtándu holunni. Meira
Golf 12. apríl 2013 23:42

Jason Day efstur ţegar Masters-mótiđ er hálfnađ - svipmyndir frá degi 2

Jason Day, 25 ára gamall Ástrali, er međ forystu eftir annan dag á Mastersmótinu í golfi. Tiger Woods er í 7. sćti ţremur höggum á eftir Day. Meira
Golf 12. apríl 2013 19:17

Strákurinn spilađi of hćgt og fékk refsihögg

Hinn fjórtán ára gamli Guan Tianlang hefur vakiđ mikla athygli á Mastersmótinu en hann er yngsti keppandi sögunnar á ţessu fornfrćga móti. Kínverski táningurinn klárađi annan hringinn á Masters-mótinu... Meira
Golf 12. apríl 2013 10:00

Haldiđ í hefđirnar á Augusta

Fyrsta Masters-mótiđ fór fram á Augusta National-golfvellinum fyrir 79 árum og mótiđ hefur síđan alltaf veriđ eitt af stćrstu mótum ársins. Meira
Golf 12. apríl 2013 08:31

Bestu tilţrif fyrsta keppnisdags

Phil Mickelson, Jamie Donaldson og hinn fjórtán ára Tianlang Guan buđu upp á bestu tilţrifin á fyrsta keppnisdegi á Masters í gćr. Meira
Golf 12. apríl 2013 08:30

Garcia nýtur augnabliksins

Spánverjinn Sergio Garcia og Ástralinn Marc Leishman eru efstir og jafnir ađ loknum fyrsta keppnisdegi á Masters mótinu í golfi. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ
  • Skođun

Mest lesiđ

Forsíđa / Sport / Golf / Masters 2012: Kveikir umdeild bók neistann hjá Tiger Woods?
365 miđlar ehf.
Skaftahlíđ 24
105 Reykjavík
sími 512 5000