FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ NÝJAST 07:00

Betri skráning slysa eflir forvarnarstarf

FRÉTTIR

Masters 2012: Hnífjöfn barátta milli Tigers og Rory

Vísir Golf 04. apríl 2012 12:00
Rory McIlroy og Tiger Woods.
Rory McIlroy og Tiger Woods. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES

Það hefur sjaldan ríkt eins mikil eftirvænting fyrir fyrsta risamót ársins í golfi enda margir líklegir til þess að gera atlögu að titlinum. Veðbankar eru flestir með Tiger Woods sem líklegan sigurvegara en ungstirnið Rory McIlroy frá Norður-Írlandi er einnig ofarlega á þeim lista. Ekki má gleyma Englendingunum Luke Donald og Lee Westwood en þeir eru í hópi þeirra sem hafa aldrei náð að sigra á risamóti á ferlinum.

Donald er í efsta sæti heimslistans en Westwood er í því þriðja. Skiptar skoðanir eru um hver muni standa uppi sem sigurvegari en viðmælendur Fréttablaðsins hafa aðeins trú á því að tveir kylfingar komi til greina sem sigurvegar. Og það kemur víst fáum á óvart að þeir eru Tiger Woods og Rory McIlroy. Fréttablaðið fékk nokkra áhugasama kylfinga til þess að spá fyrir um sigurvegarann í ár, en spámennirnir eru allir þekktir fyrir aðra hluti en golf.

Hlynur Bæringsson
Tiger Woods
Körfuknattleiksmaðurinn Hlynur Bæringsson, sem leikur með sænska liðinu Sundsvall, hefur aðeins verið að fikra sig áfram í golfíþróttinni en hann hefur trú á því að Tiger Woods standi uppi sem sigurvegari á Mastersmótinu í ár. „Ég hef trú á því að Tigerinn fari aftur í gang. Hann hefur eins og allir vita ekki náð fyrri getu eftir alla skandalana og verið í miklu basli. Ég hef mikla samúð með mönnum sem eru í basli á golfvellinum, enda þekki ég eingöngu þá hliðina á sportinu, að ströggla. En eins og ég trúi á að einn daginn muni mínir sönnu golfhæfileikar skína í gegn, þá trúi ég því að Tiger nái loksins að að nálgast fyrri styrk og það mun skila honum sigri í mótinu," segir Hlynur Bæringsson.

Sigurður Hlöðversson
Rory McIlroy
Sigurður Hlöðversson eða „Siggi Hlö" er gríðarlega áhugasamur kylfingur og hann ætlar að fylgjast vel með Mastersmótinu. Útvarpsmaðurinn efast um að Tiger Woods nái að landa sigri í fimmta sinn á ferlinum. „Ég veit að allra augu beinast að Tiger vegna þess að hann náði loksins að vinna mót. Ég sá hann reyndar vinna þetta sama mót árið 2009 þegar ég fór og elti hann á Bay Hill. Held að það hafi verið síðasta mótið sem hann vann. Ég held að hann vinni ekki Masters í ár, hann á við smá meiðsli að stríða og er ekki enn kominn í sitt besta form. Ég held með Rory McIlroy, finnst hann vera sá sem er að taka við keflinu af Tiger næstu 10 árin. Hann hefur þroskast mikið sem leikmaður og nú held ég að græni jakkinn verði hans. Margir tala um að Phil Michelson muni gera harða hríð að jakkanum en ég spái að hann annaðhvort komist ekki í gegnum niðurskurðinn eða rétt merji það að komast áfram," segir Siggi Hlö.

Ríkharður Daðason
Rory McIlroy
Norður-Írinn Rory McIlroy er efstur á listanum hjá Ríkharði Daðasyni, fyrrum landsliðsframherja í knattspyrnu. Ríkharður hefur eins og margir aðrir afreksíþróttamenn fengið mikla golfdellu eftir að ferlinum lauk. „Rory McIlroy sýndi í fyrra að hann getur spilað á Augusta, þó hann hafi skort reynslu til að klára mótið. Hann kom gríðarlega öflugur til baka aðeins nokkrum vikum síðar og rúllaði yfir samkeppnina á US Open þegar hann vann með 8 höggum. Jafnframt hefur hann verið að spila vel undanfarið og fór í fyrsta sinn í efsta sæti heimslistans þegar hann vann Honda Classic um daginn og lenti í þriðja sæti vikuna á eftir á Cadillac Championship. Rory McIlroy fær græna jakkann í fyrsta sinn á sunnudaginn," segir Ríkharður Daðason.

Eyjólfur Kristjánsson
Tiger Woods
Tónlistarmaðurinn Eyjólfur Kristjánsson er ekki í vafa um hver sigrar á Mastersmótinu í ár og hann hefur trú á reynslumiklum bandarískum kylfingum. „Þetta er mjög einfalt. Tiger Woods sigrar. Hann er nú á ný kominn með gamla blóðbragðið í munninn, Phil Mickelson kemur þar næst í kjölfarið," segir Eyjólfur Kristjánsson en hann hefur stundað golfíþróttina af krafti og er án efa einn sá allra besti úr röðum tónlistarmanna á Íslandi. Eða svo segir sagan.


Deila
Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.
Golf 18. júní 2013 13:45

Haraldur byrjar vel í Bretlandi

Haraldur Franklín Magnús, Íslandsmeistarinn í golfi, byrjađi vel á Opna breska áhugamannamótinu sem hófst í Englandi í gćr. Meira
Golf 18. júní 2013 11:30

Rose fékk ráđleggingar frá Yoda

Íţróttasálfrćđingurinn Gio Valente notađi myndbrot úr Star Wars-mynd til ađ hvetja kylfinginn Justin Rose til dáđa fyrir Opna bandaríska meistaramótiđ í golfi. Meira
Golf 16. júní 2013 23:38

Fyrsti sigur Justin Rose | Sjötta silfur Mickelson

Englendingurinn Justin Rose stóđ uppi sem sigurvegari á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Leik lauk fyrir stundu. Meira
Golf 16. júní 2013 12:45

Táningurinn á fimm högg á hetjuna sína

Michael Kim brosti út ađ eyrum ţegar hann leit á stöđuna ađ lokinni 15. holu á ţriđja hring á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Meira
Golf 16. júní 2013 11:48

Klúđur hjá Donald og Mickelson leiđir

Eftir ađ hafa spilađ frábćrlega fyrstu sextán holurnar á ţriđja hringnum á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi fatađist Luke Donald flugiđ. Meira
Golf 15. júní 2013 13:00

Glćsipútt Mickelson og önnur mögnuđ högg

Bestu kylfingar heimsins eigast viđ um helgina á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Frábćr tilţrif sáust á öđrum degi mótsins í gćr. Meira
Golf 15. júní 2013 12:39

Rćst út á Herminator Invitational | Myndir

Leikur er hafinn á árlegu styrktarmóti knattspyrnukappans Hermanns Hreiđarssonar í golfi. Í ár er keppt á golfvelli Leynis á Akranesi. Meira
Golf 15. júní 2013 10:33

Mickelson og Horschel deila forystusćtinu

Bandaríkjamennirnir Phil Mickelson og Billy Horschel hafa eins höggs forystu á nćstu menn ađ loknum öđrum degi á bandaríska meistaramótinu í golfi. Meira
Golf 14. júní 2013 10:15

Luke Donald í forystu | Flott högg á fyrsta degi

Englendingurinn Luke Donald hafđi forystu ţegar hćtta ţurfti keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gćrkvöldi vegna myrkurs. Meira
Golf 13. júní 2013 23:07

Leik frestađ í annađ sinn

Mótshaldarar á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi neyddust til ađ fresta leik öđru sinni í dag fyrir stundu. Meira
Golf 13. júní 2013 15:22

Leik frestađ vegna úrhellis

Keppni á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi hefur veriđ frestađ um ótiltekinn tíma vegna úrhellis. Meira
Golf 13. júní 2013 07:00

Topparnir saman í ráshóp á US Open

Annađ risamót ársins hefst í Bandaríkjunum í dag. Meira
Golf 11. júní 2013 16:35

Sunna lék best íslensku stelpnanna

Guđrún Brá Björgvinsdóttir, Ólafía Ţórunn Kristinsdóttir og Sunna Víđisdóttir hafa lokiđ leik á fyrsta hringnum á Opna breska meistarmóti áhugakylfinga í golfi. Meira
Golf 09. júní 2013 15:00

Haraldur Franklín sigrađi í Eyjum

Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigrađi í dag í öđru stigamóti Eimskips-mótarađarinnar í golfi. Leikiđ var í Vestmannaeyjum og var baráttan mikil á lokahringnum. Meira
Golf 09. júní 2013 13:39

Anna Sólveig sigrađi á Securitas-mótinu

Anna Sólveig Snorradóttir úr Golfklúbbnum Keili sigrađi í kvennaflokki á Securitas-mótinu í dag en mótiđ er partur af Eimskipsmótaröđinni. Anna Sólveig spilađi lokahringinn á 77 höggum en hún var í mi... Meira
Golf 09. júní 2013 13:17

Birgir Leifur lék lokahringinn á ţremur yfir pari

Birgir Leifur Hafţórsson var nú rétt í ţessu ađ klára ađ leika lokahringinn á Czech Challenge Open mótinu sem fer fram í Tékklandi. Birgir Leifur lék hringinn á 75 höggum eđa ţremur yfir pari vallarin... Meira
Golf 08. júní 2013 20:45

Birgir er sjö höggum á eftir efsta manni

Kylfingurinn Birgir Leifur Hafţórsson lék ţriđja hringinn á Czech Challenge Open á 71 höggi, eđa einu höggi undir pari, í dag. Meira
Golf 08. júní 2013 18:21

Andri Ţór kominn í toppsćtiđ

Hinn 14 ára gamli Fannar Ingi Steingrímsson náđi ekki ađ fylgja eftir frábćrum hring á Securitas-mótinu í gćr. Hann lék ţó vel í dag og er í öđru sćti. Meira
Golf 08. júní 2013 16:41

Anna Sólveig leiđir í Eyjum

Anna Sólveig Snorradóttir er komin međ forystu á Securitas-mótinu í golfi sem fram fer í Vestmannaeyjum. Anna Sólveig lék á 72 höggum í dag og er međ eins höggs forskot. Meira
Golf 08. júní 2013 14:45

Tiger mćtir sínum gamla kylfusveini

Skipuleggjendur US Open eru búnir ađ gefa út ráshópana fyrir fyrstu tvo hringi mótsins. Ţrír bestu kylfingar heims munu spila saman. Meira
Golf 08. júní 2013 07:00

Ćtla mér á Evrópumótaröđina á ný

Birgir Leifur Hafţórsson byrjar vel á Áskorendamótaröđinni og er samtals á tíu höggum undir pari á Czech Challenge-mótinu í Tékklandi. Kylfingurinn leggur allt undir og ćtlar sér sigur. Markmiđiđ er e... Meira
Golf 07. júní 2013 17:55

Fimmtán ára gutti leiđir í karlaflokki

Hiđ 15 ára undrabarn Fannar Ingi Steingrímsson heldur áfram ađ slá í gegn í íslenska golfheiminum en hann leiđir eftir fyrsta hringinn á Securitas-mótinu sem er annađ mót Eimskipsmótarađarinnar. Meira
Golf 07. júní 2013 14:15

Birgir Leifur í banastuđi í Tékklandi

Birgir Leifur Hafţórsson, kylfingur úr GKG, lék annan hringinn á Czech Challenge Open mótinu á 65 höggum eđa sjö höggum undir pari. Meira
Golf 04. júní 2013 10:00

Hver er Fannar Ingi Steingrímsson?

14 ára strákur spilađi seinni hringinn á Strandarvelli um helgina á 61 höggi eđa níu höggum undir pari. Hann fór holu í höggi, fékk átta fugla og setti vallarmet af gulum teigum á Hellu. Meira
Golf 03. júní 2013 07:34

Tiger ţarf ađ laga "allt"

Tiger Woods lauk keppni í 65. sćti á Memorial-mótinu í Ohio um helgina. Bandaríski kylfingurinn segist ţurfa ađ taka til í leik sínum enda Opna bandaríska meistaramótiđ handan viđ horniđ. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viđskipti
  • Lífiđ
  • Skođun

Mest lesiđ

Forsíđa / Sport / Golf / Masters 2012: Hnífjöfn barátta milli Tigers og Rory
365 miđlar ehf.
Skaftahlíđ 24
105 Reykjavík
sími 512 5000