Ungu kylfingarnir söfnuðu eiginhandaráritunum við æfingasvæðið á Augusta og voru þeir ánægðir.
mynd/friðirk þór
Þorsteinn Hallgrímsson á Augusta-vellinum í Georgíu skrifar:
Mastersmótið er fyrsta risamót ársins og því ríkir mikil eftirvænting bæði hjá leikmönnum sem og áhorfendum um hvernig kylfingar koma inn í nýtt tímabil. Umgjörðin hér í Augusta er þannig að allt snýst um mótið þessa viku og það er nánast hægt að skera andrúmsloftið því spennan er svo mikil hér í bænum. Hér tala margir um einvígi á milli Tigers Woods og Rory McIlroy þar sem þeir eru taldir heitustu kylfingarnir í dag.
Ég persónulega tel að þeir sem eru á innan við 6 höggum frá efsta manni fyrir lokadag eigi góðan möguleika á sigri með flottum hring á lokadegi.
Við megum ekki gleyma frábærum lokaholum hjá meistara síðasta árs, Charl Schwartzel, frá Suður-Afríku sem fékk fjóra fugla á fjórum síðustu brautum vallarins eftir að hafa verið höggi á eftir Jason Day og Adam Scott þegar hann stóð á 15. teig. Það er allavega alveg á hreinu að það eru mörg ár síðan það hefur verið svona mikil spenna fyrir þetta sögufræga mót sem fyrst var haldið árið 1934.
Ég get fullyrt eftir að hafa gengið völlinn hér á æfingadögunum þá eru allar aðstæður frábærar fyrir leikmenn til þess að leika gott golf en ég segi ekki að þær séu auðveldar.
Mesti munurinn við völlinn frá því að vera á staðnum eða horfa á í sjónvarpi er hve völlurinn er hæðóttur. Á mörgum brautum er hæðarmismunur frá teig að flöt 10-30 metrar. Einnig er gaman að sjá hvað flatirnar eru litlar og hve mikið landslag er í þeim. Nú skilur maður mun betur þegar þessir frábæru kylfingar eru að þrípútta kannski 3 metra pútt. Það er engin kargi á vellinum og utan brautar er grasið slegið í um 15 mm.
Umhirða og snyrtimennska á vellinum og öllu svæðinu er langt fram úr öllu sem ég hef séð. Það er alveg á hreinu að völlurinn skartar sínu fegursta þessa vikuna og hér talar fólk um að mest spennandi Mastersmótið í tugi ára hefjist á fimmtudag þar sem Tiger Woods, Phil Mickelson, Luke Donald og Rory McIlroy hafi allir unnið mót á síðustu vikum og eru í fantaformi.
Eitt er víst að Mastersmótið árið 2012 hefur sjaldan boðið upp á meiri spennu. Tilhlökkunin er því mikil hjá golfunnendum og er ég á meðal þeirra. Góða skemmtun.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Kristján Benedikt Sveinsson úr Golfklúbbi Djúpavogs og Gísli Sveinbergsson úr Keili léku á pari á fyrri hring fyrsta stigamóts sumarins á Íslandsbankamótaröð unglinga í Þorlákshöfn í gær.
Meira
Ungur kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, Bryndís María Ragnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór á holu í höggi í sínu fyrsta höggi á fyrsta stigamóti unglinga sem leikið er um helgina í Þorlákshöfn.
Meira
Tiger Woods tryggði sér í kvöld sigur á Players-golfmótinu með því að spila lokadaginn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Woods lék tveimur höggum betur en næstu menn sem voru Svíinn David Lin...
Meira
Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnað högg sem varð til þess að forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluðu saman þriðja hringinn á mótinu í gær.
Meira
Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu eru farnir að munda kylfurnar og vel það því margir af stærstu golfvöllum svæðisins verða opnaðir í dag eða um helgina.
Meira
Ye Wocheng, tólf ára kínverskur áhugakylfingur, varð í dag sá yngsti í sögunni til þess að keppa á Evrópumótaröðinni. Wocheng vill þó líklega gleyma frumrauninni sem allra fyrst.
Meira
Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir að veður þurfi að batna til muna eigi kylfingar að geta hafið leik á vellinum þann 9. maí eins og vonir standa til.
Meira
Kvenkylfingurinn Brittany Lang var ekki alveg í sínu besta formi á LPGA-móti í Texas en dagurinn hjá henni á golfvellinum endaði aftur á móti mjög vel.
Meira
Kínverskir kylfingar halda áfram að setja aldursmet í golfinu en nú er ljóst að hinn tólf ára gamli Ye Wocheng verður yngsti kylfingurinn til að keppa á Evrópumótaröðinni í golfi þegar hann keppir á V...
Meira
Adam Scott endurskrifaði sögu ástralska kylfinga í gær með því að verða fyrsti Ástralinn til að vinna Mastersmótið í golfi. Fram að þessu leit hreinlega út fyrir að það lægju álög á áströlskum kylfing...
Meira
Ástralinn Adam Scott tryggði sér sigur á Mastersmótinu í gær eftir bráðabana á móti Argentínumanninum Angel Cabrera. Nú er hægt að sjá svipmyndir frá lokadeginum inn á Sjónvarpsvef Vísis eða með því a...
Meira
Adam Scott vann í gær Mastersmótið í golf og fékk að klæðast græna jakkanum fyrstur Ástrala. Hann sagði eftir sigurinn að Greg Norman ætti þátt í þessum titli því hann væri sá sem ástralskir kylfingar...
Meira
"Ég veit ekki hvernig þetta gerðist. Margt hefur breyst á tveimur árum,“ sagði Adam Scott. Nýbakaður sigurvegari á Masters átti erfitt með að koma tilfinningum í orð þegar græni jakkinn var í sj...
Meira
Ástralinn Adam Scott varð í kvöld fyrsti Ástralinn sem vinnur Masters-mótið í golfi. Hann tryggði sér sigur á annarri umspilsholu gegn Argentínumanninum Angel Cabrera. Hann setti niður um fjögurra met...
Meira
Argentínumaðurinn Angel Cabrera og Bandaríkjamaðurinn Brandt Snedeker eru efstir og jafnir á Masters-mótinu í golfi fyrir lokahringinn. Þeir eru báðir á samtals sjö höggum undir pari. Báðir kylfingar ...
Meira
Tiger Woods slapp við frávísun af Masters-mótinu fyrr í dag. Honum var þó refsað en hann fékk tveggja högga refsingu fyrir ólöglegt dropp sem þó var ekki viljandi.
Meira
Tiger Woods var ekki vísað úr Masters-mótinu fyrir ólöglegt dropp á hringnum í gær. Hann fær aftur á móti tveggja högga víti frá dómaranefnd mótsins.
Meira
Tiger Woods er í 7. sæti og þremur höggum á eftir efsta manni þegar Mastersmótið í golfi er hálfnað. Tiger byrjaði vel á öðrum hring en hafði ekki heppnina með sér á fimmtándu holunni.
Meira
Hinn fjórtán ára gamli Guan Tianlang hefur vakið mikla athygli á Mastersmótinu en hann er yngsti keppandi sögunnar á þessu fornfræga móti. Kínverski táningurinn kláraði annan hringinn á Masters-mótinu...
Meira