Íslenski boltinn

Markvörður Keflavíkur: Ég grét eins og lítið barn á kvöldin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sindri í marki Keflavíkur í leik gegn Fylki sumarið 2015.
Sindri í marki Keflavíkur í leik gegn Fylki sumarið 2015. vísir/anton
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður Keflavíkur, ritar mjög áhugaverðan pistil inn á vefsíðu Víkurfrétta í dag sem hann kallar „Að missa tökin“.

Í upphafi pistilsins rifjar Sindri upp ástæður þess að hann sé í fótbolta og hvernig þjálfarinn hans í 5. flokki fékk hann til þess að halda áfram í boltanum eftir að hann hefði misst áhugann.

Sindri sló í gegn í marki Keflavíkur sumarið 2015 en síðasta sumar mátti hann sætta sig við bekkjarsetu þar sem Keflavík hafði fengið Beiti Ólafsson frá HK til þess að standa á milli stanganna í Bítlabænum.

Keflavík leyfði markverðinum ekki að skipta um félag er hann vildi fara til liðs þar sem hann fengi að spila. Það höndlaði Sindri illa.

„Þegar ég frétti að þessu yrði hafnað af Keflavík brotnaði ég gjörsamlega og fór í svo ranga átt í lífinu. Ég varð pirraður úti Keflavík, félagið sem ég elskaði út af lífinu og fannst það hafa brugðist mér.

Ég lét svona lítinn hlut breyta mér til hins verra eg fór að venja mig á slæma hluti, svo sem svefnvenjur og fór að borða illa og sýndi ekki jafn mikinn áhuga og áður. Auðvitað kom það bara í bakið á mér þar sem ég fór að standa mig illa á æfingum, spila illa með 2. flokk og fór að líða mjög illa utan fótboltans,“ skrifar Sindri og heldur áfram.

„Engin tækifæri komu og allt í blússandi mínus og margir farnir að efast um mig, sjálfstraustið farið og ekkert gekk upp. Ég var að láta fólk út í bæ hafa áhrif á mig vegna þess að þeim fannst að ég ætti að vera í markinu sem var að sjálfsögðu bölvað kjaftæði þar sem ég átti ekki neitt skilið að vera í markinu. Ég skammast mín stundum fyrir að viðurkenna það en ég grét oft eins og lítið barn á kvöldin og fannst ég vera vonlaus og að ég væri bara ekki lengur með þetta.“

Sindri segist skrifa þennan pistil til að hvetja fólk til að gefast ekki upp þó það gefi á bátinn. Pistilinn má lesa í heild sinni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×