Fótbolti

Mark Torres dugði ekki til gegn Barcelona

Torres á ferðinni í kvöld.
Torres á ferðinni í kvöld. vísir/getty
Barcelona er komið í undanúrslit spænska konungsbikarsins eftir skrautlegan 2-3 sigur á Atletico Madrid í kvöld.

Barcelona vann því rimmu liðanna 4-2 samanlagt.

Fernando Torres virðist vera að finna gamla formið hjá sínu uppeldisfélagi því hann kom Atletico yfir strax á 1. mínútu.

Neymar jafnaði fyrir Barca aðeins átta mínútum síðar. Raul Garcia kom Atletico í 2-1 á 30. mínútu með marki úr vítaspyrnu.

Markaveislunni var ekki lokið í fyrri hálfleik því Miranda, varnarmaður Atletico, skoraði sjálfsmark og svo skoraði Neymar aftur. 2-3 í hálfleik og það reyndust vera lokatölur leiksins.

Bæði Gabo og Mario Suarez fengu svo að líta rauða spjaldið hjá Atletico í þessum líflega leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×