Viðskipti innlent

Margrét Sanders nýr liðsmaður Strategíu

Sæunn Gísladóttir skrifar
Margrét er reyndur stjórnandi á sviði rekstrar og fjármála.
Margrét er reyndur stjórnandi á sviði rekstrar og fjármála. Mynd/aðsend
Margrét Sanders mun ganga til liðs við ráðgjafafyrirtækið Strategíu ehf. í mars næstkomandi.

Margrét er reyndur stjórnandi á sviði rekstrar og fjármála og hefur síðastliðinn 16 ár starfað í öguðu og alþjóðlegu umhverfi sem eigandi og framkvæmdastjóri rekstrar hjá Deloitte.

Margrét er formaður Samtaka verslunar og þjónustu og situr einnig í framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins. Auk þess er hún í stjórn Amerísk íslenska viðskiptaráðsins.

Margrét er með viðskiptafræði- og MBA gráðu frá WCU háskóla í Norður Karólínu í Bandaríkjunum, en samhliða námi og að því loknu starfaði hún við ráðgjöf hjá McLaurin Consulting í Bandaríkjunum. Margrét lauk einnig háskólanámi frá KHÍ, og er með mikla kennslureynslu.

Margrét hefur sinnt ýmsum ábyrgðarstörfum í gegnum tíðina en hún var í stjórn um byggingu háskólasjúkrahúss, í verkefnastjórn "Auðar í krafti kvenna", ýmsum stjórnum á Suðurnesjum, auk þess sem hún vann að flutningi grunnskólans til sveitarfélaga á suðvestur horninu.

Strategía er sérhæft ráðgjafarfyrirtæki sem veitir ráðgjöf til fjárfesta, stjórna og æðstu stjórnenda fyrirtækja og stofnana. Núverandi meðeigendur og ráðgjafar Strategíu eru Guðrún Ragnarsdóttir, Helga Hlín Hákonardóttir hdl. og Svava Bjarnadóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×