Körfubolti

Margrét Rósa nýtti tímann vel

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Rósa Hálfdanardóttir.
Margrét Rósa Hálfdanardóttir. Vísir/Daníel
Margrét Rósa Hálfdanardóttir skoraði átta stig á fjórtán mínútum þegar lið hennar, körfuboltalið Canisius-háskóla í Buffalo í New York ríki, tapaði naumlega á heimavelli á móti Albany í bandaríska háskólaboltanum í gær.

Margrét Rósa hitti meðal annars úr báðum þriggja stiga skotum sínum í leiknum og þá var hún með eina stoðsendingu og einn stolinn bolta.

Margrét Rósa lék með íslenska körfuboltalandsliðinu í sumar en hún kemur frá Haukum. Hún er á sínu fyrsta ári í Canisius-háskólanum og var þarna að skora sín fyrstu stig.

Leikurinn í nótt var fyrsti heimaleikur Canisius-háskólaliðsins á tímabilinu og þar með fyrsti heimaleikur Margrétar í bandaríska háskólaboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×