Margræðar myndir

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 13. janúar 2012 15:30
Eins og fram kemur í texta með sýningunni í Hafnarborg nutu íslenskir málarar á fyrri hluta tuttugustu aldar akademískrar menntunar og skildu margir þeirra eftir sig fjölda kyrralífsmynda.
Eins og fram kemur í texta með sýningunni í Hafnarborg nutu íslenskir málarar á fyrri hluta tuttugustu aldar akademískrar menntunar og skildu margir þeirra eftir sig fjölda kyrralífsmynda.
Ragna Sigurðardóttir skrifar:
Myndlist. Kyrralíf og Pleaser. Ýmsir, Harpa Björnsdóttir. Hafnarborg. Kyrralíf til 26. febrúar, Pleaser til 12. febrúar. Hafnarborg er opin 12-17 alla daga og til 21 á fimmtudögum. Lokað á þriðjudögum.

Tvær sýningar voru opnaðar í Hafnarborg um síðustu helgi, kyrralífsmyndir í sýningarstjórn þeirra Ólafar K. Sigurðardóttur og Þorbjargar Br. Gunnarsdóttur og einkasýning Hörpu Björnsdóttur, Pleaser.

Kyrralíf er eitt af hefðbundnum myndefnum málaralistarinnar ásamt sögulegum málverkum, landslagi og portrettum. Þáttur í grundvallarþjálfun akademískra málara var að ná tökum á að mála eftir fyrirmynd. Eins og fram kemur í texta með sýningunni í Hafnarborg nutu íslenskir málarar á fyrri hluta tuttugustu aldar akademískrar menntunar og skildu margir þeirra eftir sig fjölda kyrralífsmynda.

Dágott samansafn málverka með þessu myndefni má nú sjá í Hafnarborg, fallegt, fróðlegt og skemmtilegt úrval fyrir margra hluta sakir. Það er forvitnilegt að sjá hversu skýrt persónueinkenni ólíkra málara koma fram í verkunum.

Konur máluðu gjarnan kyrralíf og Kristín Jónsdóttir náði mjög góðum tökum á því en hún á einkar sterkar myndir í þessum flokki. Málaraeinkenni þeirra Gunnlaugs Scheving, Gunnlaugs Blöndal og Þorvalds Skúlasonar eru auðþekkt, og svo mætti áfram telja en hér eru verk eftir flesta þekkta málara þess tíma þegar kyrralíf var vinsælt í málaralistinni, fram eftir tuttugustu öldinni. Aðeins vottar fyrir uppbroti kúbisma en það er ekki mikið.

Myndefnið sýnir ekki aðeins persónueinkenni málaranna heldur líka daglegt umhverfi þeirra. Karl Kvaran hefur átt fallega mjólkurkönnu, Kristín Jónsdóttir var ákafur blómaræktandi og Louisa Matthíasdóttir eldaði án efa bæði kúrbít og eggaldin.

Í dag eigum við ekki sambærileg verk sem birta umhverfi myndlistarmanna, en hér eru líka nýrri myndir. Myndir Áslaugar Thorlacius úr eldhúsi sínu og stofu í anda Skagamálaranna dönsku eru fallegar og málverk Helga Þorgils líkjast helst heimspekilegum hugleiðingum um form og liti.
Áhugavert væri að leita uppi staðgengla kyrralífsmynda fyrri tíma í myndlist samtímans. Er þá kannski að finna í innsetningum Margrétar H. Blöndal, í verkum Kristins G. Harðarsonar eða Hildigunnar Birgisdóttur, svo einhverjir séu nefndir?

Pleaser, nefnir Harpa Björnsdóttir sýningu sína á neðri hæð. Verk Hörpu hér eru bæði íhugul og kyrrlát og ríma vel við sýninguna á efri hæðinni, og þótt viðfangsefnið sé annað endurspeglast kyrralífsmótífið innan sumra verka hennar. Stór ljósmynd þar sem orðið Pleaser liðast úr úr munni listakonunnar líkt og á málverki frá fjórtándu eða fimmtándu öld, leiðir áhorfandann inn í myndheim Hörpu þar sem táknmyndir eru ráðandi. Harpa vitnar jafnt til fyrri alda og til samtímans í verkum sínum þar sem hún birtir hugmyndir um eiginleika listamannsins og setur sjálfsmynd sína í samhengi við myndlist fyrr og nú. Margar hugmyndir búa að baki sýningunni þó verkin séu ekki mörg. Harpa kann þá list að stíga til baka og gefa áhorfandanum það rými sem þarf til þess að verk hennar nái að lifa áfram í hugarheimum.

Niðurstaða: Vandað val kyrralífsmynda skapar margræða og fallega sýningu og minnir á þá margvíslegu möguleika sem felast í íslenskri myndlistarsögu. Margræð sýning Hörpu Björnsdóttur gefur áhorfandanum rými til umhugsunar.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 25. maí. 2012 12:00

Alltumlykjandi og áhrifarík

Sigur Rós tekur stóra beygju með rólegri og hrífandi plötu. Á heildina litið er Valtari fí...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 22:00

Barsmíðar og bollukinnar

Aðdáendur órakaða ólátabelgsins Jason Statham verða himinlifandi, en realistar ættu að hal...  

Meira
Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Margræðar myndir