Fótbolti

Marco Reus tryggði Dortmund toppsætið með marki í lokin | Sjáðu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Varamaðurinn Marco Reus skoraði jöfnunarmark Borussia Dortmund tveimur mínútum fyrir leikslok og tryggði þýska liðinu ekki aðeins 2-2 jafntefli á móti Real Madrid á Santiago Bernabéu heldur einnig toppsæti riðilsins.

Karim Benzema kom Real Madrid í 2-0 í leiknum með mörkum sitthvorum megin við hálfleikinn og það leit allt út fyrir það að hann væri með því að tryggja Real Madrid efsta sætið.

Karim Benzema skoraði fyrra markið á 28. mínútu eftir lága fyrirgjöf Daniel Carvajal inn í markteiginn en seinna markið hans kom á 53. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá James Rodriguez.

Leikmenn Borussia Dortmund gáfust hinsvegar ekki upp. Pierre-Emerik Aubameyang minnkaði muninn í 2-1 átta mínútum eftir seinna mark Benzema og setti um leið meiri spennu í leikinn.

Jöfnunarmarkið kom þó ekki fyrr en 27 mínútum síðar. Marco Reus kom inná sem varamaður fyrirAndré Schürrle strax eftir markið og það var hann sem jafnaði metin á 88. mínútu eftir stoðsendingu frá Pierre-Emerik Aubameyang.

Þetta þýðir að Real Madrid er eitt af liðunum sem geta mætt Arsenal í sextán liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×