Fótbolti

Marcelo í aðalhlutverki í sigri Real Madrid | Fjör í fyrri hálfleik hjá Barcelona

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Marcelo kom með beinum hætti að öllum þremur mörkum Real Madrid gegn Chelsea.
Marcelo kom með beinum hætti að öllum þremur mörkum Real Madrid gegn Chelsea. vísir/epa
Real Madrid og Barcelona unnu bæði sína leiki á International Champions Cup í dag.

Brasilíski vinstri bakvörðurinn Marcelo skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í mark 3-2 sigri Real Madrid á Chelsea í Michigan í Bandaríkjunum.

Marcelo skoraði tvö mörk með sjö mínútna millibili um miðjan fyrri hálfleik og átti svo sendingu á Mariano Diaz sem skoraði með þrumuskoti á 37. mínútu.

Staðan var 3-0 í hálfleik og allt fram á 80. mínútu þegar Eden Hazard minnkaði muninn fyrir Chelsea. Hazard skoraði svo aftur í uppbótartíma en endurkoma enska liðsins hófst aðeins of seint. Lokatölur 3-2, Real Madrid í vil.

Barcelona bar 3-1 sigurorð af Celtic í leik sem fór fram í Dublin. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Arda Turan kom Börsungum yfir á 11. mínútu en Leigh Griffiths jafnaði metin 18 mínútum síðar eftir skelfileg mistök Jose Martinez, varnarmanns Barcelona.

Á 31. mínútu varð Efe Ambrose, varnarmaður Celtic, fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark. Munir El-Haddadi skoraði svo þriðja mark Barcelona fjórum mínútum fyrir hálfleik og þar við sat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×