Lífið

Manuela Ósk fetar í fótspor Kim Kardashian með nektarmynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manuela Ósk Harðardóttir.
Manuela Ósk Harðardóttir.
Manuela Ósk Harðardóttir hefur fetað í fótspor bandarísku raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian með birtingu á nektarmynd af sjálfri sér inni á baðherbergi.

Manuela Ósk er ein skærasta samfélagsmiðlastjarna Íslands og birti myndina á Instagram-síðu sinni. Tæplega fimmtíu þúsund manns fylgjast með Manuelu á Instagram og nýtur hún mikilla vinsælda þar eins og á Snapchat.

Manuela er nú stödd í París og kemur fram að myndin sé tekin á BLC Design Hotel í ellefta hverfi borgarinnar.

„Ef þú ætlar að vera góður á samfélagsmiðlum þá þarftu bara að fara í karakter, það er bara það sem þetta snýst um, og að hafa efnið áhugavert þá þarf oft að búa eitthvað til eða gera eitthvað sem er alls ekki þú. Það er mjög mikilvægt að þeir sem fylgja mér geri sér grein fyrir því út af því það eru oft mjög steiktir hlutir sem eiga sér stað á Snapchat,“ sagði Manuela um listina að vera vinsæll á samfélagsmiðlum.

Manuela er ekki fyrsta íslenska fyrirsætan sem fetar í fótspor Kim Kardashian. Það gerði Ásdís Rán í fyrra þegar hún lék eftir bossamynd Kardashian.

Að neðan má sjá myndina sem Manuela birti á Instagram-reikningi sínum og þar fyrir neðan er innslag úr Íslandi í dag fyrr á árinu þar sem fyrirsætan sagði frá notkun sinni á samfélagsmiðlum.


So?

A photo posted by M A N U (@manuelaosk) on

Að neðan má sjá innslag úr Íslandi í dag þar sem rætt er við Manuelu um notkun samfélagsmiðla.

Tengdar fréttir

Leitar að fullkomnum stað fyrir Miss Universe Iceland

Manuela Ósk Harðardóttir ætlar sér að breyta ímynd fegurðarsamkeppna á Íslandi með Miss Universe Iceland sem fram fer í haust. Keppnin á að virka valdeflandi á stúlkurnar og opna á möguleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×