Sport

Manning sló eitt af stóru metunum í NFL-deildinni

Ljósmyndarar þyrptust að Manning eftir leik í nótt.
Ljósmyndarar þyrptust að Manning eftir leik í nótt. vísir/getty
Goðsögnin Peyton Manning, leikstjórnandi Denver Broncos, bætti enn einni rósinni í hnappagat sitt í nótt í öruggum sigri liðsins á San Francisco 49ers.

Hann sló þá met fyrrum leikstjórnanda Green Bay Packers, Brett Favre, yfir flestar snertimarkssendingar í sögu deildarinnar. Manning þurfti að ná þremur slíkum til að slá metið og hann afgreiddi málið með stæl í fyrri hálfleik.

Hann jafnaði metið með glæsilegri sendingu á Wes Welker og bætti það síðan með sendingu á Demaryius Thomas. Þá skutu menn upp flugeldum og fögnuðu. Svo mikið að leikmenn andstæðinganna stóðust ekki mátið og fögnuðu með. Slík var gleðin. Manning endaði á því að kasta fjórum snertimarkssendingum í leiknum. Metið var 508 og hann er nú kominn með 510.

Denver er búið að vinna fimm leiki og tapa einum en það er ekki besti árangurinn í deildinni. Dallas Cowboys hefur nefnilega unnið sex leiki í röð eftir að hafa tapað í fyrsta leik. Árangur liðsins komið flestum í opna skjöldu. Hlauparinn DeMarco Murray heldur áfram að slá í gegn en hann hefur hlaupið yfir 100 jarda í öllum sjö leikjunum sem er NFL-met.

Varnarmaður 49ers klappar Manning á hjálminn rétt eftir að hann sló metið.vísir/getty
Það eru annars fullt af áhugaverðum hlutum að gerast í deildinni. Meistarar Seattle töpuðu gegn St. Louis í gær og eru 3-3 í vetur. Hin frábæra vörn liðsins er ekki svipur hjá sjón og liðið er ekki í með sæti í úrslitakeppninni eins og staðan er núna.

Arizona er með 5-1 árangur eins og Denver og Philadelphia. New England, Baltimore, Indianapolis, San Diego, Detroit og Green Bay eru öll 5-2.

Úrslit:

Baltimore-Atlanta  29-7

Buffalo-Minnesota  17-16

Chicago-Miami  14-27

Detroit-New Orleans  24-23

Green Bay-Carolina  38-17

Indianapolis-Cincinnati  27-0

Jacksonville-Cleveland  24-6

St. Louis-Seattle  28-26

Washington-Tennesee  19-17

San Diego-Kansas  20-23

Dallas-NY Giants  31-21

Oakland-Arizona  13-24

Denver-San Francisco  42-17

Í nótt:

Pittsburgh-Houston

Staðan í deildinni.

Svona var gleðin er Peyton sló metið í nótt.vísir/getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×