Enski boltinn

Mangala á leið til Valencia

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mangala í leik með City.
Mangala í leik með City. vísir/getty
Franski landsliðsmaðurinn Eliaquim Mangala er ekki inn í plönum Pep Guardiola, stjóra Man. City, og er því á förum frá félaginu.

Man. City hefur ákveðið að lána leikmanninn til spænska félagsins út leiktíðina og hefur Mangala þegar gengist undir læknisskoðun.

Hann mun væntanlega fylla skarð Skhodran Mustafi sem er farinn frá Valencia til Arsenal fyrir 35 milljónir punda.

Það eru aðeins tvö ár síðan Mangala kom til City frá Porto en hann kostaði félagið þá 32 milljónir punda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×