Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, var allt annað en ánægður með lið sitt eftir tapið gegn Arsenal í dag.
Það hefur ekkert gengið hjá liðinu síðastliðin mánuð og eftir tapið á Emirates-vellinum í dag er liðið átta stigum á eftir Manchester United í öðru sæti deildarinnar.
„Við vorum einfaldlega lélegri aðilinn í dag og áttum ekkert meira skilið úr þessum leik. Það getur allt gerst í fótbolta og við neitum að gefast upp."
Mario Balotelli slapp með skrekkinn í byrjun leiks þegar hann tæklaði Alex Song, leikmann Arsenal, og átti réttilega að fá beint rautt spjald. Martin Atkinson, dómari leiksins, sá ekki atvikið og dæmdi ekki einu sinni aukaspyrnu. Balotelli fékk reyndar tvö gul spjöld síðar í leiknum og fauk af velli.
„Frá hliðarlínunni sá ég ekki atvikið vel en ég er búinn að sjá það núna á myndbandi og hann átti að fá rautt spjald í upphafi leiksins."
„Ég á í raun ekki til orð yfir hegðun hans í dag. Hann hefur gríðarlega hæfileika og er frábær leikmaður en svona hegðun er ekki hægt að verja. Hann olli mér miklum vonbrigðum í dag."
„Það kæmi mér ekki á óvart ef Balotelli fengi lengra bann í vikunni og í raun á hann það skilið. Hann verður að þroskast og haga sér eins og maður. Ég veit í raun ekki hvað ég get sagt eftir svona hegðun."
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
"Leikmenn sem hegða sér svona spila ekki undir minni stjórn. Með svona hegðun sjá leikmenn sjálfir um að mála sig út í horn," segir Paolo Di Canio knattspyrnustjóri Sunderland.
Meira
Enska úrvalsdeildin mun sakna ýmissa kunnulegra andlita á næstu leiktíð. Auk Sir Alex Ferguson, Jamie Carragher og Paul Scholes kvöddu þrír aðrir góðkunningjar knattspyrnuvöllinn.
Meira
"Ég hef oft sagt þeim hve frábærir þeir séu en undanfarna tvo mánuði hafa þeir verið stórkostlegir," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, og lofaði leikmenn sína eftir 1-0 sigurinn á Newcastle í dag.
Meira
Kanarífuglarnir frá Norwich gerðu sér lítið fyrir og unnu 3-2 sigur á andlausu liði Manchester City á útivelli í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Leikmenn West Brom og Manchester United buðu til veislu á The Hawthorns í West Bromwich í dag. Lokatölurnar urðu 5-5 þar sem Romelu Lukaku stal senunni.
Meira
Tottenham lagði Sunderland 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Sigurinn dugði liðinu þó ekki til sætis í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð þar sem Arsenal stóð sína vakt gegn N...
Meira
Arsenal lagði Newcastle að velli 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Sigurinn tryggir liðinu 4. sæti deildarinnar og sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð.
Meira
Liverpool kvaddi einn sinn dáðasta son, Jamie Carragher, þegar liðið lagði QPR að velli 1-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Romelu Lukaku kom inn á sem varamaður og skoraði þrennu í ótrúlegu 5-5 jafntefli West Brom og Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Meira
Wayne Rooney missir af leik West Brom og Manchester United í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Kona hans Coleen á von á öðru barni þeirra hjóna.
Meira
Sir Alex Ferguson stýrir Manchester United í síðasta og 1500. skiptið og Arsenal og Tottenham berjast um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni. Lokaumferðin fer fram í dag.
Meira
Enska knattspyrnufélagið Brighton hefur sett í skoðun atvik sem átti sér stað fyrir leik liðsins og Crystal Palace í undanúrslitum umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni í vikunni. Starfsmaður Bri...
Meira
Sir Alex Ferguson hefur engar áhyggjur af framtíð Wayne Rooney hjá Manchester United og ætlar ekki að láta það vera sitt síðasta verk hjá félaginu að skipta sér af því.
Meira
Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff segist vera upp með sér að vera orðaður við stjórastöðu Everton en hann ætlar að einbeita sér að því að halda Cardiff í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Meira
Reynsluboltinn og goðsögnin Ryan Giggs hjá Englandsmeisturum Manchester United segir að hann og aðrir eldri leikmenn liðsins muni styðja vel við bakið á nýjum knattspyrnustjóra félagsins, David Moyes....
Meira
Rafael Benitez segir ólíklegt að hann muni taka við Everton í sumar eftir að David Moyes yfirgefur félagið til að taka við Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Meira
Chris Waddle, fyrrum leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, er langt frá því að vera einn af mestu aðdáendum enska knattspyrnumannsins David Beckham ef marka má útvarpsviðtal við hann á BBC. Beckh...
Meira
Stoke City hefur sett af stað innanhússrannsókn eftir að svínshöfuð fannst í skáp framherjans Kenwyne Jones í morgun en þetta gerðist á æfingasvæði félagsins. Stoke City mætir Southampton í lokaumferð...
Meira
Sérstök valnefnd ensku úrvalsdeildarinnar hefur valið Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóra Manchester United, besta stjóra tímabilsins og Gareth Bale, leikmann Tottenham, besta leikmann ársins.
Meira