Fótbolti

Manchester City skoraði þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum | Sjáið mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Raheem Sterling fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Raheem Sterling fagnar öðru marka sinna í kvöld. vísir/getty
Manchester City tryggði sér 4-2 sigur á þýska liðinu Borussia Mönchengladbach í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld en með þessum sigri tryggði liðið sér jafnframt sigur í riðlinum.

Útlitið var þó ekki alltof bjart fyrir Manchester City því Borussia Mönchengladbach var 2-1 yfir þegar aðeins rúmar tíu mínútur voru eftir af leiknum.

Leikmenn Manchester City áttu hinsvegar frábæran lokakafla með þá Raheem Sterling og Wilfried Bony í fararbroddi.

Raheem Sterling skoraði tvö mörk eftir sendingar frá Wilfried Bony og Bony skoraði svo sjálfur fjórða markið en þessi þrjú mörk komu á aðeins fimm mínútna kafla.

Manchester City hlaut því einu stigi meira en Juventus sem tapaði 1-0 á móti Sevilla á sama tíma.

David Silva kom Manchester City í 1-0 strax á sextándu mínútu eftir frábæra hælsendingu Raheem Sterling.

Julian Korb jafnaði hinsvegar metin aðeins þremur mínútum síðar. Það var síðan Raffael sem kom Borussia Mönchengladbach í 2-1 þremur mínútum fyrir hálfleik.

Þannig var staðan þangað til að Manchester City fór á flug á lokamínútum leiksins. Sigurinn var fyllilega sanngjarn þótt að City-menn hafi þurft að bíða eftir mörkunum þangað til í lokin.





David Silva kemur Manchester City í 1-0 Julian Korb jafnar fyrir Gladbach Raffael kemur Gladbach í 2-1 Raheem Sterling jafnar metin í 2-2 Raheem Sterling kemur City í 3-2 Wilfried Bony innsiglar sigur City



Fleiri fréttir

Sjá meira


×