Bifreiðaeign hér á landi er nú orðið talin sjálfsagður þáttur í heimilishaldi, rétt eins og ískápur og eldavél. Ekki er óalgengt að hjón eigi hvort sína bifreið, og þar sem afkomendur búa gjarnan hjá foreldrum sínum fram á fullorðinsár, má jafnvel sjá þrjár eða fjórar bifreiðar á hlaðinu. Úr þessu hefur dregið eftir að kreppan tók völdin. Sést þó enn. En eftir að bensínverð fór fram úr réttlætiskennd almennings og peningabuddan fór að kenna til, heyrir maður um vinahópa og fjölskyldur saman í bifreið þar sem áður var bara setið í bílstjórasætinu, á leið í skóla og á vinnustaði. Þetta er ekki aðeins hagkvæmt, þetta er beinlínis félagslegur ávinningur. En kannski heyrir þetta til undantekninga. Umferðin er ekki aðeins mikil á þeim tímum sem fólk er á leið í vinnu og heim. Það er oft undarlega mikil umferð í borginni um miðjan dag, þegar maður myndi halda flestir bifreiðaeigendur væru á vinnustað eða í skóla. Eins gott að það er allt malbikað. Það er eitt af því sem við tökum fyrir sjálfsagðan hlut í dag.
Menn sem munar um Ég bjó í þrettán ár á Snæfellsnesi áður en leiðin þangað var malbikuð, aðeins nokkrir vegarbútar hér og þar. Ferðir til Reykjavíkur og heim aftur í Volksvagen með börnin aftur í voru ekkert í líkingu við það að skreppa á nesið í dag: Ósléttur malarvegur og ryk sem þyrlaðist um allt í fjóra til sex tíma, allt eftir veðri og árstíð. Þetta var áður en Hvalfjarðargöngin komu til sögunnar, sem styttu þessa leið umtalsvert. Í dag finnst manni akstur um landið vera eins og að sitja í þotu. Algjör veisla. Ingólfur á Hellu sætti á sínum tíma mikilli gagnrýni fyrir það bruðl að malbika veginn fyrir austan fjall. Ég hugsa hlýlega til hans hvert skipti sem ég ek þessa leið sem og til annarra sem beittu sér fyrir þessari lífsgæðabót víða um landið. Geir Hallgrímsson, sem var borgarstjóri í Reykjavík 1959 til 1972, lét setja varanlegt slitlag á allar götur borgarinnar á tíu árum, fékk samþykkt vandað aðalskipulag, reisti íþróttamannvirki og lét leiða hitaveitu í hvert hús, en fram að því var aðeins hitaveita í takmörkuðum hluta bæjarins. Ég tel að enginn borgarstjóri í Reykjavík, fyrr eða síðar, hafi verið þarfari borgarbúum en Geir Hallgrímson, og á það ekki síst við um þá sem minnst máttu sín.
Nú erum við vöknuð Það er með kreppuna okkar eins og segir í málshættinum: Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Við höfum fengið til baka margt sem fór fyrir borð í sveiflunni. Dómgreindin var ekki alltaf upp á sitt besta þegar allt virtist vera hægt. Ekkert ómögulegt. Eftir hrun víkur frá manni sá beygur að fáeinir menn séu að eignast Ísland, og að stjórnmálamenn og embættismenn séu í klappliðinu. Líka fólkið á götunni, upp að vissu marki. Þetta var að verða eins og sjálfsköpuð dáleiðsla. En nú erum við vöknuð. Að vísu eftir vondan draum, en reynslunni ríkari. Verkefni dagsins er að virkja málefnalega umræðu. Reiðin er ekki lengur móðins. Hún skilar engu. Auðfundið er að vilji til þess að fullorðnast í þessu efni er að breiðast út. Traust er hvorki keypt né selt. Við verðum að sætta okkur við það að þetta verður eins og hver önnur meðganga, sem er ekki endilega auðveld. En hún er þess virði. Traust myndast smám saman og samstaða í kjölfarið, ef vilji er til þess. Framtíðin er semsagt í okkar höndum. Við skulum fara bjartsýn inn í sumarið, þakklát fyrir góða heilsu, fjölskyldu, góða vini, bæinn okkar, landið okkar – og malbikið!
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“.
Meira
Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra...
Meira
Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand...
Meira
Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur...
Meira
Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ...
Meira
Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því.
Meira
Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí...
Meira
Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að.
Meira
Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums...
Meira
Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna.
Meira
Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ...
Meira
Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a...
Meira
Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga.
Meira
Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek...
Meira
Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik...
Meira
Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ...
Meira
Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum...
Meira
Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ....
Meira
Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un...
Meira
Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“
Meira
Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni.
Meira