Makedóníumenn héldu út á móti Pólverjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2012 17:05 Mynd/AFP
Makedónía vann tveggja marka sigur á Póllandi 27-25, í fyrsta leik dagsins í milliriðli eitt á EM í handbolta í Serbíu. Makedónía var sex mörkum yfir í hálfleik og náði að hanga á forystunni í þeim seinni. Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson dæmdu leikinn og gerðu það vel. Pólverjar unnu upp ellefu marka forskot á móti Svíum á laugardaginn og voru nálægt því að vinna upp sjö marka forskot Makedóníumann í dag. Þeir eiga enn von með að komast áfram en til þess þurfa þeir að vinna Þjóðverja í lokaleiknum og treysta á Danir vinni ekki Svía. Kiril Lazarov skoraði 9 mörk fyrir Makedóníu og er orðinn langmarkahæstur á Evrópumótinu. Borko Ristovski varði frábærlega í markinu eða alls 19 skot. Bartosz Jurecki skoraði mest fyrir Pólverja eða fimm mörk. Makedónía tók strax frumkvæðið í leiknum dyggilega studdir af litríkum og hávaðasömum áhorfendum. Makedóníumenn komust í 4-1, 10-4 og 16-9 en þeir voru síðan sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12. Borko Ristovski varði 12 skot í fyrri hálfleik eða 50 prósent skota sem komu á hann. Makedóníumenn náðu sjö marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks en Pólverjar skoruðu fjögur mörk í röð og minnkuðu muninn í þrjú mörk, 20-17, þegar tuttugu mínútur voru eftir. ' Makedóníumenn náðu aftur sex marka forskoti í leiknum, 25-19, en Pólverjar gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í tvö mörk. 25-23, með því að skora aftur fjögur mörk í röð. Pólverjar komust hinsvegar ekki nær og Makedóníumenn fögnuðu sigri.Úrslit, dagskrá og staðan í öllum riðlum
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira