Makedónía vann Serbíu | Jafnt hjá Ungverjalandi og Króatíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2012 20:45 Úr leik Serbíu og Makedóníu. Nordic Photos / AFP
Það verða Slóvenía og Makedónía sem munu spila um fimmta sætið á EM í Serbíu og þar með mögulega um sæti í undankeppni Ólympíuleikanna í Lundúnum. Ungverjaland hefði með sigri á Króatíu í kvöld getað hoppað upp fyrir Slóvena í milliriðli 2 og þar með spilað um fimmta sætið. Ungverjar þurftu þó að sætta sig við jafntefli gegn Króatíu sem var öruggt með annað sæti riðilsins fyrir leikinn. Lokatölur voru 24-24. Makedónía tryggði sér þriðja sætið í milliriðli 1 með sigri á Serbum, 22-19. Serbar voru sömuleiðis búnir að vinna riðilinn og fara því áfram í undanúrslitin þar sem þeir mæta einmitt Króötum. Makedónía, Pólland og Þýskaland enduðu öll með fimm stig í milliriðli 1 en Makedónía er með besta árangurinn í innbyrðisviðureignum liðanna og hafnar þar með í þriðja sæti. Gabor Csaszar fór hamförum fyrir Ungverja og skoraði fjórtán mörk í leiknum gegn Króötum. Hann skoraði til að mynda fyrstu sex mörk sinna manna í seinni hálfleik en það var eftir rúmlega nítján mínútna bið eftir að einhver annar Ungverji kæmist á blað. Ungverjar höfðu forystu í hálfleik, 13-12, eftir að hafa haft undirtökin lengst af í fyrri hálfleik. Króatar byrjuðu svo betur í þeim síðari og komust yfir en svo var jafnt á öllum tölum síðustu 20 mínútur leiksins. Ekkert var skorað síðustu tvær mínúturnar og niðurstaðan jafntefli. Makedónía var yfirleitt skrefi framar gegn Serbum í dag. Þó var jafnt þegar sjö mínútur voru eftir, 19-19, en Makedónía skoraði síðustu þrjú mörk leiksins og tryggði sér sigurinn.
Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Foreldrarnir að rifna úr stolti: Gunnlaugur manifestaði birtu eftir erfitt vor Golf HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira