Makedónar réðu ekkert við Navarro - Spánverjar í úrslitin á EM í körfu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. september 2011 16:02 Juan Carlos Navarro var óstöðvandi í leiknum í dag. Mynd/AFP
Evrópumeistarar Spánverja eru komnir í úrslitaleikinn á þriðja Evrópumótinu í röð eftir tólf stiga sigur á Makedóníu, 92-80, í undanúrslitunum á EM í körfu í Litháen. Spánverjar lentu í vandræðum í þessum leik á móti spútnikliði Makedóníu en fyrirliðinn Juan Carlos Navarro átti stórleik og var öðrum fremur maðurinn á bak við sigur Spánverja. Juan Carlos Navarro skoraði alls 35 stig í leiknum en hann setti niður 13 af 23 skotum sínum. Gasol-bræðurnir voru líka öflugir, Pau Gasol var með 22 stig og 17 fráköst og Marc Gasol skoraði 11 stig, tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Serge Ibaka var síðan með 11 stig, Bo McCalebb var með 25 stig og 5 stoðsendingar hjá Makedóníu, fyrirliðinn Pero Antić var með 17 stig og 9 stig og Vlado Ilievski skoraði 15 stig. Eftir jafna byrjun náðu Spánverjar góðum spretti og voru 26-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Spánverjar voru síðan komnir tíu stigum yfir í upphafi annars leikhluta, 28-18, og virtust vera á leiðinni að klára leikinn en raunin varð önnur. Makedónar gáfust hinsvegar ekki upp og unnu næstu fjórar mínútur 14-3 og komust yfir í 32-31. Spánverjar náðu aftur fimm stiga forskoti en annars góður sprettur Makedóna sá til þess að þeir voru 45-44 yfir í hálfleik. Þrír leikmenn Makedónía voru komnir með 10 stig eða meira og það gekk flest allt upp hjá liðinu í þessum fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að hafa forystuna í upphafi seinni hálfleiks þar sem bakverðir Juan Carlos Navarro (Spánn) og Bo McCalebb (Makedónía) fóru á kostum í sínum liðum. Navarro var alveg sjóðheitur, skoraði á endanum 19 stig í leikhlutanum og sá til þess að Spánverjar voru 71-62 yfir fyrir lokaleikhlutann. Serge Ibaka byrjaði fjórða leikhlutann á tveimur körfum eftir sendingar frá Pau Gasol og spænska liðið var skyndilega komið með tólf stiga forystu, 76-64. Spánverjar voru með frumkvæðið eftir það og unnu að lokum tólf stiga sigur.
Körfubolti Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Sjá meira