Innlent

Magnús Tumi: Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið

Mikill sprengikraftur hefur verið í eldgosinu í Grímsvötnum og þétt öskufall allt frá Kirkjubæjarklaustri að Skeiðarársandi. Þegar mest lét þeyttust allt að 20 þúsund tonn af gosefni á sekúndu frá eldstöðinni. Goskrafturinn hefur ívið dvínað í dag, en jarðvísindamenn segja ómögulegt að spá fyrir um framhaldið.

Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, fór í könnunarflug ásamt fleiri vísindamönnum í dag. Hann segir kraftinn hafa ívið dvínað. „En það er samt verulega mikill. Varðandi magnið má reikna með því að þegar mest var hafi 10-20 þúsund tonn af gosefni verið að koma upp um gosopið," segir Magnús.

Nokkrum klukkutímum eftir að gosið hófst tók aska að falla í byggð við sunnanverðan Vatnajökul, um fimmtíu kílómetrum frá gosstöðvunum. Mikið öskufall hefur verið frá gosinu og Vatnajökull öskugrár. Í gærkvöldi var einna mesta öskufallið kringum Kirkjubæjarklaustur.

Engin eldstöð á Íslandi gýs jafn oft og Grímsvötn sem eru í vestanverðum Vatnajökli. Eldstöðin liggur undir jökli og samanstendur af þremur öskjum en meginaskjan sést úr lofti og er um 20 ferkílómetrar að stærð. Til samanburðar má nefna að Seltjarnarnes er 2 ferkílómetrar, meginaskja Grímsvatna er því 10 sinnum stærri. Vitað er um að minnsta kosti 60 gos í Grímsvötnum síðustu 800 ár, en annað eins gos hefur þó ekki sést hjá núlifandi mönnum.

Um framhaldið segir Magnús Tumi: „Það má reikna með því að á fjórða degi fari verulega að draga úr gosinu miðað við fyrri eldgos." Næstu dagar eru því óljósir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×