Magnús Geir rak framkvæmdastjórn RÚV Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2014 10:37 Nýjar stöður framkvæmdastjórnar RÚV verða auglýstar lausar til umsóknar.
Nýr útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, kynnti starfsfólki RÚV í morgun áherslur sínar og stefnu í rekstri Ríkisútvarpsins og skipulagsbreytingar til að styðja við þær áherslur. Klukkan tíu var boðað til neyðarfundur í útvarpshúsinu við Efstaleiti. Öllum framkvæmdastjórum RÚV var sagt upp störfum. Stórkostlegt tap blasir við fyrstu 6 mánuði ársins. Í tilkynningu frá stjórn RÚV ofh liggur fyrir að tap af rekstri félagsins á yfirstandandi rekstrarári verður umtalsvert meira en áætlanir stjórnenda RÚV gerðu ráð fyrir, jafnvel þótt að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu. Í tilkynningunni frá útvarpsstjóranum kemur fram að öllum framkvæmdastjórum RÚV verði sagt upp og stöður þeirra auglýstar lausar til umsóknar. Þeir sem fá uppsagnarbréfið eru þeir Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri sjónvarps, Bjarni Kristjánsson fjármálastjóri, Eyjólfur Valdimarsson tæknistjóri, Óðinn Jónsson fréttastjóri, Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV, Magnús R. Einarsson dagskrárstjóri útvarps, Þorsteinn Þorsteinsson markaðsstjóri, Berglind G. Bergþórsdóttir mannauðsstjóri og Ingólfur Bjarni Sigfússon nýmiðla- og vefstjóri. „Við viljum leggja aukna áherslu á innihaldið, dagskrána sjálfa og innlenda gæðaframleiðslu. Samhliða viljum við opna samtalið um okkar Ríkisútvarp. Við viljum vera með þjóðinni og setja áhorfendur og hlustendur í fyrsta sæti. Til að þetta sé mögulegt þurfum við að stokka starfsemina upp til að nýta betur þann auð sem við búum yfir á Ríkisútvarpinu,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri í fréttatilkynningunni. Hana má lesa í heild sinni hér að neðan.Nýr útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, kynnti starfsfólki RÚV í morgun áherslur sínar og stefnu í rekstri Ríkisútvarpsins og skipulagsbreytingar til að styðja við þær áherslur en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá RÚV.Leggja á aukna áherslu á innihald og sköpun í miðlum RÚV með því að setja innlenda gæðaframleiðslu á oddinn. Þá hyggst útvarpsstjóri leitast við að opna samtalið um Ríkisútvarpið, hlutverk þess, stefnu og dagskrá. Jafnrétti milli kynja og út frá búsetu verður í forgangi og lagði Magnús Geir jafnframt áherslu á að dagskrá RÚV nái til nýrra kynslóða og að regluleg endurnýjun verði í hópi áhorfenda og hlustenda.Nýtt skipulag og skipurit Ríkisútvarpsins, sem ætlað er að styðja við þessar áherslubreytingar, var samþykkt af stjórn RÚV í gær. Í nýja skipuritinu fær dagskrárhluti starfseminnar aukið vægi, stoðsvið eru sameinuð og töluverð breyting verður á hlutverkum sviða Ríkisútvarpsins. Nýjar stöður framkvæmdastjórnar RÚV verða auglýstar lausar til umsóknar. Við samsetningu nýrrar framkvæmdastjórnar verður m.a. gætt að fjölbreytileika og jafnvægis milli kynja. Nýtt skipulag og skipurit mun taki gildi þegar ný framkvæmdastjórn hefur tekið til starfa að loknu ráðningarferli. Núverandi framkvæmdastjórn sinnir störfum sínum áfram fram að þeim tíma.Þá kom fram hjá útvarpsstjóra í morgun að vinna sé hafin við endurskoðun á húsnæðismálum Ríkisútvarpsins. Skoðaðir verða möguleikar á flutningum í hentugra húsnæði eða breytingum á núverandi húsnæði. Samhliða verður unnið að endurnýjun á tæknibúnaði RÚV til að gera miðlum þess betur kleift að mæta nýjum tíma. Fjármál fyrirtækisins verða sömuleiðis endurskoðuð en uppfærð rekstraráætlun Ríkisútvarpsins var kynnt á fundi stjórnar RÚV í gær. Liggur fyrir að tap af rekstrinum verður umtalsvert meira en áætlanir fráfarandi framkvæmdastjórnar gerðu ráð fyrir. Nú er gert ráð fyrir að tapið verði 305 m. kr. fyrstu 6 mánuði ársins og 357 m. kr. á rekstarárinu öllu, jafnvel þó að gripið hafi verið til umfangsmikilla niðurskurðaraðgerða á tímabilinu. Þetta mikla tap mun hafa veruleg áhrif á eigið fé Ríkisútvarpsins, en það var við lok síðasta rekstrarárs 653 m. kr. Ríkisútvarpið sendi af þessum sökum afkomuviðvörun til Kauphallarinnar í gær. Þá hefur stjórn Ríkisútvarpsins óskað eftir óháðri úttekt á fjármálum stofnunarinnar. Vonir eru bundnar við að áðurnefndar skipulagsbreytingar og nýjar áherslur muni styrkja dagskránna, straumlínulaga reksturinn og bæta fjárhagsstöðu RÚV og þar með koma í veg fyrir frekari hópuppsagnir. Stefnt er að því að áherslubreytingarnar birtist hlustendum og áhorfendum RÚV fyrir haustið.„Ríkisútvarpið hefur verið með þjóðinni í hartnær heila öld og er ein helsta menningar- og lýðræðisstofnun þjóðarinnar. Eftir erfiða tíma að undanförnu er kominn tími til að draga línu í sandinn, snúa vörn í sókn og horfa bjartsýn til framtíðar. RÚV býr yfir einstökum hópi starfsmanna og á ríkan sess í hjörtum landsmanna. Það eru mikil tækifæri til sóknar og ég er ekki í vafa um að framundan séu spennandi tímar þar sem sköpun, metnaður og gleði verða höfð að leiðarljósi.Við viljum leggja aukna áherslu á innihaldið, dagskrána sjálfa og innlenda gæðaframleiðslu. Samhliða viljum við opna samtalið um okkar Ríkisútvarp. Við viljum vera með þjóðinni og setja áhorfendur og hlustendur í fyrsta sæti. Til að þetta sé mögulegt þurfum við að stokka starfsemina upp til að nýta betur þann auð sem við búum yfir á Ríkisútvarpinu,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri.Meðal breytinga sem gerðar verða:• Dagskrársvið Rásar 1 og Rásar 2 verða aðskilin til að styrkja rásirnar og aðgreina betur áferð þeirra og efnistök. Samhliða verður lögð aukin áhersla á ritstjórn á hverjum miðli RÚV.• Nýtt samskiptasvið mun vinna að því að opna umræðuna um Ríkisútvarpið. Það tekur yfir kynningarhluta þess sem áður hét markaðssvið.• Nýtt sameinað svið mun annast fjármál, rekstur og tækniþjónustu. Markmiðið er að ná fram aukinni hagræðingu í starfsemi RÚV með skilvirkara skipulagi.• Íþróttadeild og svæðisstöðvar færast frá fréttastofu. Íþróttadeild færist yfir á dagskrársvið sjónvarps en staðsetning svæðisstöðva í nýju skipulagi verður kynnt síðar.• Nýmiðladeild verður efld
Mest lesið „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ Innlent Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Innlent Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð Innlent „Hún er albesti vinur minn“ Innlent Einn rólegur, annar afar ósáttur Innlent Hvað vitum við um Leó páfa? Erlent „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Innlent Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök Erlent Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Innlent Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs Innlent Fleiri fréttir „Hún er albesti vinur minn“ Loftslagsmál sitji á hakanum vegna stríða og heimsfaraldurs „Þeir sem búa í glerhúsi ættu að spara grjótkastið“ „Svik við lögreglumannastéttina“ og slái hann „mjög illa“ Átta ára fangelsi í sögulegu fíkniefnamáli Einn rólegur, annar afar ósáttur Skólaþorpið í Laugardal: Syðri innkeyrslunni lokað og 256 bílastæði fjarlægð „Gott að eldast“ í tuttugu og tveimur sveitarfélögum Uppsagnir á Þjóðminjasafninu Lítil Björg dró stóra Hildi í land Nýr páfi, svik við almenning og loðnasti starfsmaður Rimaskóla Lá alblóðugur á gangstétt eftir að hafa komist undan árás æskuvinarins Þungt hugsi og í áfalli Telja Jón Þór hafa tryllst af afbrýðissemi Viðsnúningur eftir krappan dans Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Rúmir níu milljarðar runnið úr ríkissjóði til flokkanna Ólafur Þór undrandi og dómsmálaráðherra talar um svik við þjóðina Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin Svik við almenning, kerfið og samstarfsfólk Ein breyting á stjórn sem leggja á niður „Rotnir starfshættir og ríkisrekið ofbeldi gegn borgurunum“ Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar Hafdís hafi bara umlað „hann reyndi að drepa mig“ Annar snarpur skjálfti í Ljósufjallakerfi Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum „Þetta er mál sem varðar ekki einungis kaþólsku kirkjuna“ „Íslenskir bankar eru með belti, axlabönd, sikrisnælur og hjálma“ „Þetta er svona eitraður kokteill” Til skoðunar hvort hægt sé að innheimta leigu beint af tekjum Sjá meira