Körfubolti

Magnaður Martin stigahæstur á vellinum í sigri

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin hefur spilað frábærlega á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku.
Martin hefur spilað frábærlega á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. vísir/bára dröfn
Martin Hermannsson átti enn einn stórleikinn þegar Charleville-Mézières bar sigurorð af Vichy-Clermont, 94-80, í frönsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Martin var stigahæstur allra á vellinum með 26 stig. Næsti maður skoraði 19 stig.

Íslenski landsliðsmaðurinn spilaði allar 40 mínúturnar og auk þess að skora stigin 26 tók hann sjö fráköst og gaf níu stoðsendingar. Hann var einnig stoðsendingahæstur á vellinum.

Martin hitti úr níu af 15 skotum sínum utan af velli og sex af sjö vítum hans fóru ofan í.

Martin og félagar eru í 2. sæti deildarinnar en þeir hafa unnið sex af átta leikjum sínum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×