Innlent

Mældist á 141 kílómetra hraða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frá Reykjanesbrautinni.
Frá Reykjanesbrautinni. Vísir/Vilhelm
Átta ökumenn hafa að undanförnu verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum en þetta kemur fram í fréttaskeyti frá lögreglunni á svæðinu.

Einn þeirra mældist á 141 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.

Sá mun fá 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá óku nokkrir án öryggisbeltis, virtu ekki stöðvunarskyldu eða brutu umferðarlög með öðrum hætti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×