Lyktarmengun kallar á tafarlausar aðgerðir Sigrún Pálsdóttir skrifar 10. maí 2012 06:00 Nýverið var haldinn íbúafundur í Mosfellsbæ um lyktarmengun frá urðunarstað höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi. Niðurstaða fundarins var einhlít. Við óbreytt ástand verður ekki unað og aðgerða þörf án tafar. Byggðasamlag sveitarfélaga um sorpeyðingu á höfuðborgarsvæðinu, Sorpa, hefur urðað úrgang í Álfsnesi frá árinu 1991. Lengi vel var þessi afurð ofgnóttar meðhöndluð sem feimnismál á Íslandi og sorpi fundinn afvikinn staður þar sem það var ýmist brennt eða urðað án úrvinnslu eða mengunarvarna. Ein helsta vísbending samfélagsins um tilurð þessara staða var fuglager í fjarska og megn óþefur sem fyllti vitin í ákveðnum vindáttum. Allir vissu að á ruslahaugunum iðaði allt af lífi. Úrgangsmál fengu þó ekki heimili í íslenskri stjórnsýslu fyrr en um og eftir 1990. Þær breytingar sem mestu máli skipta voru nýtt umhverfisráðuneyti, stofnun Sorpu bs. og nýjar reglur um mengunarvarnir og spilliefni. Skilyrði í starfsleyfi ekki uppfylltÍ upphafi voru markmiðin háleit og óumdeilt að Sorpa hefur lyft Grettistaki í meðhöndlun á úrgangi á Íslandi á þeim tveimur áratugum sem hún hefur starfað. En metnaðarfullar áætlanir eiga það til að ganga ekki eftir. Þegar sú tillaga að koma upp urðunarstað í Álfsnesi var kynnt sveitarfélögunum átti aðbúnaður að vera þannig að engin óþægindi hlytust af starfseminni. Fyrirheitin endurspeglast í starfsleyfi SORPU en þar segir að fara skuli „þannig með allan úrgang til endurvinnslu, flutnings, förgunar eða annarrar meðferðar að tryggt sé að hann valdi hvergi ónæði eða óþrifnaði.“ Ljóst er að byggðasamlaginu hefur ekki tekist að uppfylla þetta skilyrði. Á sólríkum sumardegi hafa mest verið taldir átján þúsund fuglar á sveimi yfir urðunarstaðnum. Í ofanálag á lyktin það til að vera svo megn að íbúar treysta sér ekki út úr húsi. Flokkaður úrgangur – verðmætt hráefniEn hvað er til ráða? Í nýlegum vegvísi Evrópusambandsins að skilvirkri nýtingu auðlinda er áhersla lögð á viðhorfsbreytingu. Aðildarríkjunum er uppálagt að meðhöndla úrgang sem verðmæti og hætta urðun. Sex ESB-ríki eru svo langt komin í þessu ferli að hlutfall urðunar er undir 3% af heildarmagni úrgangs. Til samanburðar urða Íslendingar á bilinu 50-72%. Fyrirmyndarríkin eiga það sameiginlegt að flokkaður úrgangur er sóttur heim til íbúa. Á Íslandi heyrir það fyrirkomulag til undantekninga og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hafa sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ekki getað komið sér saman um að taka upp sams konar verklag þrátt fyrir fyrirætlanir þar um. Lyktarmengun frá Álfsnesi má rekja til lífræns úrgangs í seyruholu og bagga sem í er óflokkað sorp. Ef blandaður úrgangur væri flokkaður og meðhöndlaður sem verðmæti væri það vandamál að minnsta kosti úr sögunni. Um seyruholuna er það að segja að hún á örugglega ekki heima í grennd við byggð þar sem ekki er útlit fyrir að hægt sé að koma alfarið í veg fyrir lyktina. Starfsleyfi SORPU í Álfsnesi rennur út um næstu áramót. Það er sameiginlegt verkefni eigenda byggðasamlagsins að gera nýjan samning og Umhverfisstofnunar að veita leyfið. Í ljósi þeirra óþæginda sem óþefur frá Álfsnesi veldur íbúum í nærliggjandi byggðum er ákvarðanafælni ekki í boði. Nú er aðgerða þörf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar