Handbolti

Löwen vann Ofurbikarinn eftir vítakastkeppni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexander fagnar í leik með Löwen.
Alexander fagnar í leik með Löwen. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen vann þýska Ofurbikarinn í kvöld með sigri á Kiel eftir vítakastkeppni.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var 28-28 og því var farið beint í vítakastkeppni. Enginn tími fyrir framlengingu í fyrsta leik vetrarins.

Löwen jafnaði metin er aðeins þrjár sekúndur voru eftir af leiknum og fylgdi því eftir í vítakastkeppninni. Mikael Apfelgren hetja Löwen þar.

Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson spila með Löwen en Alfreð Gíslason þjálfar Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×