Golf

Lokamót Evrópumótaraðarinnar hófst í morgun - Mörg stór nöfn í baráttunni

Ian Poulter byrjaði vel í Dubai.
Ian Poulter byrjaði vel í Dubai. Getty
Lokamót Evrópumótaraðarinnar, World Tour Meistaramótið sem haldið er í Dubai hófst í dag en í mótinu fá aðeins 60 stigahæstu kylfingar ársins á mótaröðinni þátttökurétt.

Spilað er um afar háar fjárhæðir og eins og gefur að skilja eru margir af bestu kylfingum heims meðal þátttakenda.

Eftir fyrsta hring leiða þeir Andy Sullivan, Martin Kaymer, Marcus Fraser og Ian Poulter á sex höggum undir pari en þeir léku Jumeirah völlinn á 66 höggum.

Ítalinn Francesco Molinari er einn í fimmta sæti á fimm höggum undir en nokkur þekkt nöfn koma á fjórum höggum undir pari, meðal annars Rory McIlroy, Branden Grace og spænska sjarmatröllið Miguel Angel Jimenez.

Þá vekur athygli að Henrik Stenson, sem hefur sigrað á þessu móti undanfarin tvö ár, er í síðasta sæti á fimm höggum yfir pari eftir hræðilegan hring upp á 77 högg.

Dubai World Tour Meistaramótið verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina, ásamt RSM Classic sem fram fer á PGA-mótaröðinni, en alla útsendingartíma má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×