Lögreglustjóri leitar stuðnings meðal femínista Jakob Bjarnar skrifar 15. júlí 2016 10:43 Sigríður Björk lögreglustjóri nýtur stuðnings femínista í hópnum Karlar gera merkilega hluti.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins, spyr inná lokuðum hópi femínista hvers vegna konur geti ekki lært að vera óumdeildar? Gerður er góður rómur af þessari athugasemd lögreglustjórans. Víst er að gustað hefur um Sigríði Björk eftir að Hanna Birna Kristjánsdóttir, þá innanríkisráðherra, skipaði hana í embætti. Nýjasta málið sem snýr að lögreglustjóranum og ætlar að reynast henni örðugt er úrskurður innanríkisráðuneytisins, þar sem kveður á um að Sigríði Björk hafi ekki verið heimilt að víkja lögreglufulltrúa tímabundið úr starfi í kjölfar þess að héraðssaksóknari hóf rannsókn á ætluðum brotum mannsins í starfi.Skjáskot úr hópnum Karlar gera merkilega hluti, en svo virðist sem að lögreglustjóri leiti stuðnings þangað, í hremmingum sínum.Sigríður Björk leitar nú stuðnings, með óbeinum hætti, í lokuðum hópi femínista sem ber hið íróníska nafn: „Karlar gera merkilega hluti“. Sigríður skrifar á þann vettvang: „Soldið erfitt að vera með umdeilda konu í frontinum. Af hverju geta konur ekki lært að vera óumdeildar eins og karlarnir. Datt þetta innlegg Sóleyjar Tómasdóttur í hug við myndina góðu frá 2014.“ Sigríður Björk lætur broskall sem blikkar auga fylgja. Með birtir Sigríður Björk mynd af foringjum innan lögreglunnar og þá bregður svo við að í þeim hópi eru einungis karlar. Fjölmargir femínistar, með Sóley Tómasdóttur í broddi fylkingar, rétta upp þumal og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir segir: „Pant vera með umdeilda konu í frontinum ANY DAY.“ Í hópnum „Karlar gera merkilega hluti“ eru 254 femínistar, ýmsar valda- og áhrifamiklar konur auk nokkurra karla en stjórnandi hópsins er Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar. Innleggið sem Sigríður Björk vísar til er einmitt glósa á fyrirsögn sem birtist á mbl.is, þar sem fjallað er um verðandi forsætisráðherra Bretlands, Theresa May, undir fyrirsögninni: „Umdeild en nýtur virðingar“. Sóley segir að það sé „Soldið erfitt að vera með umdeilda konu í frontinum. Af hverju geta konur ekki lært að vera óumdeildar eins og karlarnir?“
Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Innlent „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Innlent Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Innlent Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Innlent „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Innlent Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Innlent Fleiri fréttir Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sveitarfélögin krefja ríkið svara um NPA Norðurlönd dýpka samvinnu í varnarmálum Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið „Það er ódýrast og best og fljótlegast að kála þessum dýrum“ Bein útsending: Birting lýðheilsuvísa í Grindavík Skerjafjarðarskáldið krefst afsökunarbeiðni – annars fer það í mál Húnninn settur í frost þar til hægt verður að stoppa hann upp „Ég hefði bara sagt af mér á staðnum“ Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi Sjá meira