Innlent

Lögreglan leitar að manni

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þekkir þú manninn á þessari mynd?
Þekkir þú manninn á þessari mynd? mynd/lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti meðfylgjandi mynd á Facebook-síðu sinni í kvöld en hún óskar eftir að ná tali af manninum vegna máls sem er til rannsóknar.

Maðurinn er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444-1000.

„Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.bachmann@lrh.is eða einkaskilaboðum hér á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Myndin gæti vissulega verið skýrari, en er birt í þeirri von að einhver þekki manninn engu að síður,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×