Körfubolti

Logi stigahæstur í sigri á Lúxemborg

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Vísir/Stefán
Íslenska landsliðið í körfuknattleik sigraði fyrri æfingarleik liðsins gegn Lúxemborg í dag 78-64. Leikurinn er hluti af undirbúning íslenska liðsins fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fer fram ín næsta mánuði.

Logi Gunnarsson, skotbakvörðurinn sem leikur með Njarðvík lék sinn 100 landsleik fyrir Íslands hönd í kvöld og var hann stigahæstur leikmanna Íslands með 19 stig.

Íslenska liðið var allan tímann með yfirhöndina í leiknum og vann alla fjóra leikhluta leiksins. Ísland leikur annan leik við Lúxemborg á laugardaginn áður en æfingar halda áfram hér heima fyrir undankeppni Evrópumótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×