Lóan er komin, búin að kveða burt snjóinn, farin aftur - og hvað þá? Hér er um að ræða sandlóuna Signýju sem kom hingað í vor, verpti við flugvöllinn í Holti í Önundarfirði, ól upp unga sína og tók að því búnu flugið til Frakklands þar sem til hennar sást fyrir nokkrum dögum. Eftir hvíld þar heldur hún svo væntanlega til Vestur-Afríku þar sem hún mun eyða vetrinum í sól og sumaryl.
Upphaflega merktu menn frá Náttúrustofu Vestfjarða sandlóuna við Holtsflugvöll árið 2003 með svonefndu litamerki og gáfu henni nafnið Signý. Eftir það fréttist ekkert af henni í útlöndum en hún skilaði sér aftur í Önundarfjörðinn í fyrra, verpti þar og kom nokkrum ungum á legg með maka sínum. Þennan leik endurtók hún í vor og kom fjórum ungum á legg, eða væng, með aðstoð sama makans og í fyrra. Nokkuð er síðan hún sást þar síðast en þá fréttist af henni í París og er þetta í fyrst skipti sem litmerkt sandlóa héðan sést erlendis.
Sandlóan er náskyld heiðlóunni, þeirri sem kveður burt snjóinn, en fer heldur fyrr til vetrarstöðva í útlöndum en heiðlóan. Heiðlóan er þó líka farin að tygja sig til brottfarar sem sést af því að hún er farin að hópa sig og æfa langflug.