Llorente fær Gylfa til þess að blómstra Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 6. mars 2017 06:00 Fernando Llorente fagnar marki með Jefferson Montero og Gylfa Þór Sigurðssyni. Vísir7Getty
Spánverjinn Fernando Llorente var hetja Swansea um helgina þegar hann tryggði liði sínu afar mikilvægan sigur gegn Burnley. Llorente skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma og hélt þar með góðri siglingu Swansea í deildinni gangandi. Llorente hefur verið sjóðheitur frá því að Paul Clement tók við stjórnartaumunum í upphafi árs og gegnt lykilhlutverki ásamt Gylfa Sigurðssyni í endurreisn Swansea sem hefur klifrað upp töfluna að undanförnu. Llorente hefur skorað fimm mörk, þar af tvö í gífurlega mikilvægum sigri Swansea á Liverpool á Anfield í janúar. Það skal því engan undra að Paul Clement var fljótur að koma auga á þá leikmenn sem hann taldi að Swansea mætti alls ekki missa í janúarglugganum sem leið. Sagði hann að félagið yrði að gera allt sem hægt væri til þess að halda þeim félögum hjá Swansea.Eins og ristað brauð og smjör Raunar er það svo að ekkert leikmannapar í deildinni hefur unnið jafnvel saman og þeir tveir sé horft til stoðsendinga. Gylfi hefur fært Llorente fjögur mörk á silfurfati í deildinni og eru þeir á pari við Alexis Sanchez og Mezut Özil, Christian Eriksen og Harry Kane, Yannick Bolasie og Romelu Lukaku og Wayne Rooney og Zlatan Ibrahimovic. Samvinna Gylfa og Llorente sker sig raunar úr í þessum hópi enda keppa hinir leikmennirnir í liðum í efri hluta deildarinnar. Gylfi og Llorente ná því einstaklega vel saman enda hentar leikstíll Spánverjans afar vel. Með Llorente hefur Gylfi alltaf einhvern miðpunkt til þess að miða eitraðar fyrirgjafir sínar á auk þess sem framherjinn tekur mikið til sín með sínum mikla skrokki. Þannig hefur hann átt sinn þátt í því að Gylfi er að eiga sitt besta tímabil á Englandi frá upphafi með tíu stoðsendingar og átta mörk.Fernando Llorente og Gylfi á góðri stundu.Vísir/AFPGylfi aldrei betri Ljóst er að Gylfi nær að hámarka sína miklu hæfileika þegar hann spilar með stórum og stæðilegum framherjum en samvinna þeirra minnir mjög mikið á samvinnu Gylfa með Wilfried Bony fyrir nokkrum árum sem og Kolbeini Sigþórssyni með íslenska landsliðinu. Paul Clement, nýr stjóri Swansea, virðist hafa verið fljótur að átta sig á hversu áhrifarík samvinna þeirra gæti verið enda er Swansea nú að uppskera eftir erfitt tímabil lengst af. Frá því að Clement tók við hafa aðeins fimm lið nælt sér í fleiri stig en Swansea og hefur liðið þotið upp úr botnsæti deildarinnar í 16. sæti, fimm stigum frá falli.Grátbón Clements borið ávöxt Þjálfarinn nýi hefur unnið með ýmsum stórstjörnum í gegnum tíðina enda þjálfað hjá liðum á borð við Chelsea, PSG, Real Madrid og Bayern München. Hann segir þó að að einu leyti sé enginn betri í heiminum en Llorente. „Ég er ekki viss um það sé betri leikmaður í heiminum í dag sem er betri í að ráðast á fyrirgjafir,“ sagði Clement eftir sigurinn gegn Burnley um helgina. „Ég þekki það því að ég hef unnið með mörgum frábærum leikmönnum.“ Það segir sína sögu um gæði Llorente að Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, reyndi hvað hann gat til þess að fá Llorente til liðs við félagið í janúar, án árangurs. Það þurfti reyndar ýmislegt til en Clement hefur sagt að hann hafi nánast þurft að grátbiðja Llorente um að halda tryggð við Swansea. Sú bón virðist hafa skilað sér og enginn græðir meira á því en Gylfi Sigurðsson. Fátt bendir til annars en að Swansea muni nú bjarga sér frá falli. Liðið á eftir að spila ellefu leiki í deildinni og ætla má að um fimm sigrar í viðbót gulltryggi sætið. Fá lið í botnbaráttunni búa yfir jafn hæfileikaríkum leikmönnum og Gylfa og Llorente og með Paul Clement við stjórnvölinn má segja að eina leiðin sé upp.
Enski boltinn Mest lesið Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Handbolti Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Handbolti Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Enski boltinn Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Fótbolti Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Íslenski boltinn „Djúpir dalir en þú kemst upp úr þeim“ Sport Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Enski boltinn Fleiri fréttir Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Nkunku tryggði sigur eftir stoðsendingu Sancho „Margir sem sýndu ekki sína bestu frammistöðu í dag“ Jason Daði lagði upp mark en það dugði ekki Haaland náði ekki þrennunni en tryggði sigurinn Sjá meira