Körfubolti

Litlu slátrararnir landa sigrunum sínum með frábærum varnarleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thelma Dís Ágústsdóttir (t.v.) og Emelía Ósk Gunnarsdóttir tóku 27 fráköst saman í sigrinum á Njarðvík.
Thelma Dís Ágústsdóttir (t.v.) og Emelía Ósk Gunnarsdóttir tóku 27 fráköst saman í sigrinum á Njarðvík. Vísir/Eyþór
Kvennalið Keflavíkur er komið með fjögurra stiga forskot á toppi Domino´s deildar kvenna í körfubolta eftir tuttugu stiga sigur á nágrönnunum úr Njarðvík um helgina. Þetta var fimmti sigur Keflavíkurliðsins í röð og þessa fimm sigra hafa Keflavíkurstelpurnar unnið alla með þrettán stigum eða meira.

Það eru bæði gömul sannindi og ný að titlar vinnist á góðum varnarleik og þessi margsannaða boltaspeki ætti að ýta undir væntingar Keflvíkinga til kvennaliðsins síns það sem eftir lifir vetrar.

Keflavíkurliðið er kornungt og reynslulítið en þær lærðu að elska að spila vörn í yngri flokkunum og eru heldur ekki að tapa mikið á því að vera þjálfaðar af tvöföldum varnarmanni ársins í Sverri Þór Sverrissyni. Undir stjórn Sverris eiga öll lið í erfiðleikum með að skora hjá þeim.

Meðaldur leikmanna Keflavíkurliðsins í dag, sem spila meira en tíu mínútur að meðaltali í leik, er aðeins 19,8 ár. Það er því fróðlegt að skoða varnartölfræði liðsins upp á síðkastið. Mýtan að ungir leikmenn séu ekki eins góðir varnarmenn á alls ekki við hjá þessu liði.

Keflavíkurkonur eru nefnilega búnar að halda mótherjum sínum undir 40 prósenta skotnýtingu og undir 70 stigum í fimm leikjum í röð. Liðið hefur unnið alla fimm leikina sannfærandi og er nú öruggt með að vera á toppnum yfir jólin.

Snæfell er að fá á sig fæst stig í leik en stigaskorið snýst líka um tempó í leikjunum og Keflavíkurliðið keyrir upp hraðann í sínum leikjum. Það að mótherjar liðsins klikki á næstum því 7 af hverjum 10 skotum sínum er mögnuð tölfræði fyrir hvaða lið sem er hvað þá lið sem ætti að vera miklu blautara á bak við eyrun.

Stig og skotnýting mótherja Keflavíkur í síðustu 5 leikjum

15 stiga sigur á Stjörnunni - 57 stig og 30 prósent

18 stiga sigur á Grindavík - 66 stig og 39 prósent

30 stiga sigur á Haukum - 46 stig og 24 prósent

13 stiga sigur á Skallagrím - 55 stig og 31 prósent

20 stiga sigur á Njarðvík - 59 stig og 30 prósent




Fleiri fréttir

Sjá meira


×