Körfubolti

Límdi fyrir munninn á sér á blaðamannafundi | Myndband

Rick Carlisle.
Rick Carlisle. vísir/getty
Rick Carlisle, þjálfari Dallas Mavericks, sló í gegn á blaðamannafundi í gær.

Hann mætti á blaðamannafund eftir sigur sinna manna gegn Houston og þegar hann var spurður út í dómgæsluna tók hann upp límband og setti það yfir munninn á sér.

Það gerði Carlisle til þess að sleppa við sekt fyrir að gagnrýna dómara.

Þjálfarinn var sektaður fyrir ummæli um dómara eftir síðasta leik félaganna og hann ætlaði sér greinilega ekki að fá aðra sekt.

Atvikið má sjá hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×