Lilja ræddi við Gordon Brown um Icesave Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. maí 2016 09:25 Gordon Brown og Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra fyrir flugtak um borð í vél Turkish Airlines. Samtal þeirra sem hófst á flugvellinum hélt áfram um borð í vélinni. Mynd/aðsend
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra hitti Gordon Brown fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands fyrir tilviljun á flugvellinum í Istanbúl en þau voru bæði á leið til Brussel með Turkish Airlines. Lilja sótti ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um mannúðarmál í Istanbúl í upphafi vikunnar. Gordon Brown er fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands en ríkisstjórn hans beitti hryðjuverkalögum gegn Íslandi í bankahruninu haustið 2008. Með því vildi hann tryggja hagsmuni Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Um var að ræða afar umdeilda ákvörðun sem olli Íslendingum talsverðu tjóni. Þær skýringar voru gefnar á sínum tíma að bresk stjórnvöld hefðu dagana á undan orðið var við mikla fjármagnsflutninga frá Lundúnum til Íslands. Lilja var á þeim tíma í hringiðu þessara atburða sem starfsmaður Seðlabankans. Lilja gaf sig á tal við Brown og samtalið hélt áfram um borð í vél Turkish Airlines þar sem meðfylgjandi mynd náðist á snjallsíma. „Jú, það var óvænt að rekast á Gordon Brown á flugvellinum í Istanbúl. Hann birtist áður en við vorum kölluð um borð og settist við hliðina á mér. Ég hafði ekki hitt þennan mann áður og kynnti mig því fyrir honum. Ég ætlaði nú bara að kasta á hann kveðju, en samtalið dróst á langinn og var hið áhugaverðasta," segir Lilja. Rædduð þið Icesave? „Við áttum heiðarlegt og faglegt spjall um ýmis mál sem snerta samskipti Íslands og Bretlands, þar á meðal um Icesave. Hann bað fyrir bestu kveðju til Íslands og gladdist yfir þeim mikla árangri sem Íslendingar hafa náð á undfanförnum árum.“
Mest lesið „Þetta er að verða komið gott“ Innlent Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Innlent Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Innlent Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Innlent Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Innlent Árekstur við Kaplakrika Innlent Jakob Reynir Aftur reynir aftur Innlent Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Innlent Byrjað að flæða úr tjörninni Innlent Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Innlent Fleiri fréttir „Þetta er að verða komið gott“ Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Árekstur við Kaplakrika Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Jakob Reynir Aftur reynir aftur Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Tveggja ára fangelsi fyrir hnífaárás vegna lélegs kókaíns Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun Ríkið reynt að hafa þinglýstar jarðir af bændum með valdi Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu Íslendingurinn var handtekinn í Baltimore Foreldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt áfall Hraunið á um 330 metra í Suðurstrandarveg Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Barmur hrauntjarnar við það að bresta og mikil mengun í Svartsengi Haldlögðu mikið magn skotvopna á höfuðborgarsvæðinu Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals Sakar leigjanda sinn um blekkingar en vill grafa stríðsöxina Sundhnúkareinin gæti verið á leið í mjög langt frí Festist í dekkjarólu á Völlunum Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin á ný Sjá meira