Tónlist

Lil B bannaður af Facebook

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Lil B hefur verið kallaður vinsælasti tónlistarmaður veraldarvefsins.
Lil B hefur verið kallaður vinsælasti tónlistarmaður veraldarvefsins.
Póstmóderníski rappgrallarinn Lil B The Based God segist hafa verið bannaður af Facebook í 30 daga fyrir það eitt að segja það sem honum lægi á hjarta. „Facebook hefur lokað á mig í 30 daga fyrir að tala tæpitungulaust án ills ásetnings,“ ritaði hann á Twitter-síðu sína.

Lil B, sem mætti kalla vinsælasta tónlistarmann veraldarvefsins, fór mikinn á Facebook-síðu sinni í vikunni á sinn sérvitra hátt. „Ef þú fæddist á sjötta áratugnum eða fyrr og fjölskyldan þín barðist ekki gegn aðskilnaðarhyggju eða þrælahaldi, þá eru amma þín og afi aumingjar.“

Þá bölsótaðist hann einnig út í dýraníðinga. „Dýrum er nauðgað á hverjum degi og þau drepin af mönnum svo að þú getir borðað matinn,“ sagði hann og bætti við: „Flestum Bandaríkjamönnum finnst allt í lagi að nauðga dýrum og láta þau verða hina nýju raddlausu þræla Bandaríkjanna og heimsins, svona er auðvaldið.“

Facebook hefur ekki enn svarað fyrirspurnum fjölmiðla um hvaða ummæli hans urðu til þess að lokað væri á hann. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×