Enski boltinn

Liðsfélagi Gylfa á óskalista Klopp

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ayew fagnar hér marki sínu gegn Manchester United.
Ayew fagnar hér marki sínu gegn Manchester United. Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum ESPN er liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar í Swansea, Andre Ayew, efstur á óskalista hjá nýjasta knattspyrnustjóra Liverpool, Jurgen Klopp.

Ayew gekk til liðs við Swansea frá franska félaginu Marseille á frjálsri sölu í sumar hefur hafið tímabilið í ensku úrvalsdeildinni af krafti. Hefur hann skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í fyrstu átta leikjum tímabilsins.

Greinir ESPN frá því að Klopp hafi reynt sem knattspyrnustjóri Dortmund að fá Ayew til liðs við þýska félagið í tvígang en án árangurs en hann gæti reynt að ganga frá kaupunum á honum í þriðja sinn í sumar.

Ayew var valinn leikmaður mánaðarins í ágúst í ensku úrvalsdeildinni en hann var einnig meðal 59 leikmannana sem voru tilnefndir til Ballon d'Or verðlaunanna.x




Fleiri fréttir

Sjá meira


×