Fótbolti

Lewandowski með tvö gegn gömlu félögunum

Robert Lewandowski hefur verið duglegur að fagna mörkum undanfarna daga.
Robert Lewandowski hefur verið duglegur að fagna mörkum undanfarna daga. Vísir/Getty
Ekkert virðist geta stöðvað Robert Lewandowski þessa dagana en pólski framherjinn skoraði í dag 11. og 12. mark sitt á síðustu 12 dögum í öruggum 5-1 sigri á Dortmund í þýsku deildinni.

Lewandowski var búinn að skora fimm mörk, tvö mörk og þrjú mörk í síðustu þremur leikjum og hann bætti við tveimur mörkum til viðbotar í dag.

Thomas Müller kom heimamönnum á Allianz Arena yfir með tveimur mörkum á tíu mínútna kafla í fyrri hálfleik en Pierre Aubameyang tókst að minnka muninn fyrir Dortmund tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Lewandowski kom þýsku meisturunum 3-1 yfir á fyrstu mínútu seinni hálfleiks og gerði út um leikinn með öðru marki sínu á 58. mínútu leiksins. Mario Götze, annar fyrrum leikmaður Dortmund, bætti við fimmta marki Bayern á 66. mínútu er hann lagði boltann í netið af stuttu færi.

Bayern hótaði að bæta við mörkum á seinasta hálftímanum en árangurs og lauk leiknum með fjögurra marka sigri Bayern sem er áfram með fullt hús stiga eftir átta umferðir og sjö stiga forskot á Dortmund í 2. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×